Mennekes 07-000137 Manual De Instrucciones página 56

Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 20
Fyrirhuguð notkun
Hleðslusnúran er ætluð til að hlaða raf- og tengiltvinnbíla
á þar til ætluðum hleðslustöðvum. Óheimilt er að
nota hana í öðrum tilgangi. Fylgja verður þessum
notkunarleiðbeiningum til að tryggja öryggi við notkun
hleðslusnúrunnar.
Lesa skal notkunarleiðbeiningarnar áður en byrjað er að
nota hleðslusnúruna og fara eftir því sem þar kemur fram.
Einnig skal fara eftir því sem kemur fram í fylgiskjölum
rafbílsins.
Ef leiðbeiningunum er ekki fylgt getur hleðslusnúran orðið
fyrir skemmdum. Þetta getur einnig skapað hættu, t.d. á
raflosti, skammhlaupi og eldsvoða.
Röng notkun
Röng notkun eykur hættu á eigna- og heilsutjóni.
Forðast verður eftirfarandi:
„ Að breyta hleðslusnúrunni eða eiga við hana.
„ Að tengja hleðslusnúruna við tengla af rangri gerð.
„ Að nota hleðslusnúru sem er í ólagi.
Notandinn ber sjálfur alla ábyrgð á slysum og tjóni sem
rekja má til rangrar notkunar.
Vinsamlegast athugið að framleiðandi getur ekki komið
í veg fyrir mistök sem eiga sér stað við notkun og/eða
tengingu.
Ábyrgð MENNEKES Stecker GmbH & Co. KG nær ekki til
tjóns sem rekja má til rangrar notkunar.
Mikilvægar öryggisupplýsingar
„ Börn mega ekki nota hleðslusnúruna!
„ Haldið dýrum frá hleðslusnúrunni.
„ Tengið hleðslusnúruna eingöngu við tengla af réttri
gerð.
„ Ekki má nota millistykki eða framlengingarsnúrur.
„ Ekki má nota hleðslusnúruna í sprengifimu
umhverfi þar sem eldfiman vökva, lofttegundir eða
ryk er að finna – sprengi- og eldhætta!
Sjá mynd 1 á kápu.
Forðist aðstæðurnar sem þar koma fram.
Hætta er á tjóni og slysum ef ekki er farið
eftir þessu!
54
Tæknilýsing
Mode 3-hleðslusnúra
(gerð 2 / gerð 1)
Mode 3-hleðslusnúra (gerð GB)
Málspenna (gerð 2)
Málspenna (gerð GB)
Málspenna (gerð 1)
Máltíðni
Málstraumur (gerð 2 + gerð 1)
Málstraumur (gerð GB)
Hleðsluafl
Varnarflokkur
Umhverfishitastig
Geymsluhitastig
f Sjá einnig upplýsingaspjaldið á hleðslubúnaðinum.
Notkun
VIÐVÖRUN
Skemmd hleðslusnúra – lífshætta vegna raflosts!
Skemmd hleðslusnúra getur valdið banaslysum eða
alvarlegum meiðslum.
f Athugið með skemmdir á hleðslusnúrunni (t.d.
sprungur) fyrir hverja notkun. Ef hleðslusnúran er
skemmd skal skipta henni út fyrir nýja.
f Ekki má nota millistykki eða framlengingarsnúrur með
hleðslusnúrunni.
Sett í hleðslu
Sjá mynd 2 á kápu.
Þegar hleðslusnúran hefur verið tengd við hleðslustöðina og
rafbílinn er hægt að setja hleðsluna í gang.
Farið einnig eftir því sem kemur fram í fylgiskjölum
rafbílsins.
Staðall IEC 61851
Staðall IEC 62196
Staðall GB/T 20234
hám. 480 V AC
hám. 440 V AC
hám. 250 V AC
50 Hz / 60 Hz
20 A / 32 A
16 A / 32 A
4,6 – 22 kW
IP20 (ekki í sambandi)
IP44 (í sambandi)
IP44 (með loki)
-30 ... +50 °C
-30 ... +50 °C

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

07-00013607-000135Proofbox typ fMode 3 typ 2 20a 3ph 7.5m

Tabla de contenido