Lagalegar Upplýsingar; Svæðisbundnar Lagalegar Upplýsingar - Ottobock 50R232 Smartspine LSO high Instrucciones De Uso

Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 20
4.4 Valfrjálst – einungis 50R232 Smartspine LSO high: Fjarlæging íhluta
Hægt er að fjarlægja hliðarstoðirnar, magastoðina og bakstoðina. Læknir skal sjá um fjarlægingu
þessara hluta.
Hliðarstoðir
1) Opnið frönsku rennilásana á milli hliðarstoðanna og bakstoðarinnar.
2) Fjarlægið hliðarstoðirnar. Til að gera þetta skal toga hliðarstoðirnar yfir magastoðina (sjá
mynd 7).
Magastoð
1) Opnið frönsku rennilásana á magastoðinni (sjá mynd 8).
2) Fjarlægið magastoðina.
Bakstoð
1) Opnið franska rennilásinn á bakstoðinni.
2) Fjarlægið teygjuböndin frá bakplötunni (sjá mynd 1).
3) Lokið frönsku rennilásunum á bakstoðinni.
4) Fjarlægið bakstoðina. Þess að auki skal toga magabeltið út úr bakstoðinni.
4.5 Hreinsun
ÁBENDING
Notkun rangra hreinsiefna
Hætta er á að spelkurnar skemmist vegna notkunar rangra hreinsiefna
Hreinsið spelkurnar einungis með samþykktum hreinsiefnum.
Hreinsið spelkurnar reglulega:
1) Fjarlægið öll spjöld/plötur.
2) Festið alla frönsku rennilásana.
3) Handþvoið beltið í 30 °C heitu vatni með hefðbundnu mildu hreinsiefni.
4) Skolið vel.
5) Látið þorna. Látið ekki vera í beinum hita (t.d. í beinu sólarljósi eða í/á ofni).
5 Förgun
Vörunni verður að farga í samræmi við gildandi lög og reglur hvers lands.
6 Lagalegar upplýsingar
Öll lagaleg skilyrði eru háð viðkomandi landslögum í notkunarlandinu og kunna að vera
mismunandi samkvæmt því.
6.1 Bótaábyrð
Framleiðandi viðurkennir aðeins bótaábyrgð ef varan er notuð í samræmi við lýsingu og
upplýsingar sem koma fram í þessu skjali. Framleiðandinn viðurkennir ekki bótaábyrgð vegna
skemmda sem verða vegna þess að ekki er farið eftir þessu skjali, sér í lagi vegna rangrar
notkunar eða óheimilla breytinga á vörunni.
6.2 CE-samræmi
Þessi vara stenst kröfur Evróputilskipunar 93/42/EBE um lækningatæki. Vara þessi hefur verið
flokkuð sem tæki í I. flokki samkvæmt þeim flokkunarreglum sem greint er frá í IX. viðauka í
tilskipuninni. Samræmisyfirlýsingin er því gerð á ábyrgð framleiðanda eins og fram kemur í VII.
viðkauka í tilskipuninni.
6.3 Svæðisbundnar lagalegar upplýsingar
Lagalegar upplýsingar sem gilda eingöngu í tilteknum löndum eru skrifaðar á opinberu tungumáli viðkomandi lands að
loknum þessum kafla.
51

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

50r233 smartspine lso low50r235 smartspine lso standard

Tabla de contenido