Tæknilegar Upplýsingar - 3M PELTOR SportTac MT16H210F Serie Manual Del Usuario

Ocultar thumbs Ver también para PELTOR SportTac MT16H210F Serie:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 17
IS
• Heyrnarhlífarnar eru búnar styrkstýrðri hljóðdeyfingu. Notandi ætti að kynna sér rétta
notkun áður en hún hefst. Ef hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að
leita ráða um viðhald og hvernig skipta á um rafhlöðu í handbók framleiðanda.
• Á heyrnarhlífunum er tengi fyrir hljóðtæki. Notandi ætti að kynna sér rétta notkun áður
en hún hefst. Ef hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita lausna í
handbók framleiðanda.
• Farðu að ráðum í handbókinni um viðhald og skipti á rafhlöðum.
• Afköst tækisins geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar. Gera má ráð fyrir
að rafhlaða í heyrnarhlífum endist í 600 klukkutíma við samfellda notkun.
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti farið fram yfir dagleg
hávaðamörk.
• Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið fram yfir dagleg hávaðamörk.
5. VIÐHALD
5:1 Að skipta um eyrnapúða
(C:1) Renndu fingri undir brún eyrnapúðans og kipptu honum beint út.
(C:2) Komdu fyrir nýjum frauð- og eyrnapúða.
(C:3) Þrýstu á þangað til hann smellur á sinn stað.
5:2 Hreinlæti
Fjarlægðu eyrnapúðana og hljóðdeyfipúðana (mynd C) ef þú hefur notað heyrnarhlífarnar
um langa hríð eða ef raki hefur safnast saman inni í skálunum. Hreinsaðu og sótthreinsaðu
skálarnar, höfuðspöng og eyrnapúða reglubundið með sápu og heitu vatni. Gættu þess að
tryggt sé að sápan geti ekki valdið notandanum skaða. Láttu hlífarnar þorna áður en þú notar
þær á ný. Ekki setja hlífarnar ofan í vatn!
5:3 Notkun og geymsla
Fjarlægðu rafhlöðurnar þegar tækið er sett í geymslu. Geymdu heyrnarhlífarnar ekki við meiri
hita en +55°C, (t.d. ofan á mælaborði í bíl, í hillu eða glugga) eða við lægri hita en -40°C.
Notaðu ekki tækið í meiri hita en +55°C eða lægri en -20°C.
5:4 WEEE-táknið (raf- og rafeindabúnaður til förgunar)
Neðangreind krafa gildir innan Evrópubandalagsins.
EKKI farga vörunni í óflokkuðu sorpi bæjarfélagsins!
Táknið sorptunna með krossi yfir þýðir að öllum EEE-búnaði (raf- og rafeindabúnaði),
rafhlöðum og rafgeymum, skuli fargað í samræmi við reglur á hverjum stað með því að nýta
sér móttöku- og afhendingarstöðvar þar.
6. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
6.1 Staðlar og vottanir
3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að 3M PELTOR SportTac uppfyllir allar grunnkröfur og
önnur viðeigandi ákvæði í PPE tilskipuninni 89/686/EEC, EMC tilskipuninni 2004/108/EC og
RoHS tilskipuninni 2011/65/EU. Þar af leiðandi uppfylla tækin kröfur um CE-merkingu. Hægt
að afla sér yfirlýsingar um samræmi með því að hafa samband við 3M í því landi þar sem
tækið var keypt. Upplýsingar um tengiliði, sjá aftast í þessum notendaleiðbeiningum.
Varan hefur verið prófuð og vottuð í samræmi við EN 352-1:2002, EN 352-4:2001, EN 352-
6:2002, EN 5022:2010 +AC:2011 Class B, EN 55024:2010, EN 61000-6-2:2005 +AC:2005,
EN 61000-6-3:2007 +A1:2011 og EN 50581:2012.
Varan hefur verið skoðuð af: DECTRON AB, Thörnblads väg 6, SE-386 90 Färjestaden,
Svíþjóð.
INSPEC International Ltd, 56 Leslie Hough Way, Salford, Greater Manchester, M6 6AJ,
Bretlandi, vottunarstofnun #0194.
6:2 Útskýring á töflum yfir hljóðdeyfingu (D)
1. Tíðni (Hz)
2. Meðalhljóðdeyfing (dB)
3. Staðalfrávik (dB)
4. Ætlað verndargildi, APV
5. Þyngd (g)
6:3 Útskýring á töflu yfir rafrænan ílagsstyrk hljóðs (tafla E)
1. Gerðarheiti
2. Styrkur hljóðmerkis inn U, (mV RMS)
3. Meðalstyrkur hljóðþrýstings, dB(A)
4. Staðalfrávik hljóðþrýstings, (dB)
5. Styrkur hljóðs inn þar sem meðaltalið plús eitt staðalfrávik jafngildir 82 db(A)
29

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido