Emmaljunga NXT90 Manual De Instrucciones página 418

Ocultar thumbs Ver también para NXT90:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 262
Mikilvægar upplýsingar
VIÐVÖRUN
• Vagninum lagt, hann brotinn saman og settur í geymslu
• Setjið vagninn alltaf í bremsu þegar hann er kyrrstæður.
• Vagninn á alltaf að vera í bremsu þegar barninu er lyft í og úr vagninum.
• Leggið vagninum aldrei í brekku eða á ósléttum fleti.
• Takið barnið alltaf úr vagninum áður en hann er brotinn saman.
• Gætið þess að börn séu í öruggri fjarlægð frá hreyfanlegum hlutum þegar stil-
lingum vagnsins er breytt.
• Þegar vagninn er ekki í notkun skal geyma hann þar sem börn ná ekki til.
• Dekkin geta skilið eftir bletti á PVC-gólfdúkum eða öðru plastefni. Setjið alltaf
hlífar undir hjólin þegar vagninn er látinn standa á viðkvæmum flötum.
• Umhirða, viðhald og varahlutir
• Fylgið leiðbeiningum um umhirðu og viðhald.
• Ekki má nota vöruna ef einhver hluti hennar er í ólagi eða skemmdur.
• Gangið úr skugga um að búið sé að festa alla rennilása og smellur tryggilega
fyrir notkun.
• Notið eingöngu upprunalega varahluti frá framleiðanda eða varahluti sem
framleiðandi viðurkennir.
• Ekki má nota fylgihluti eða varahluti sem framleiðandi viðurkennir ekki.
• Loftfylltu dekkin kunna að innihalda fjölarómatísk vetniskolefni í skömmtuðu
magni. Farið varlega með dekkin og látið eingöngu fagmenn sjá um að gera
við eða skipta um dekkin og slöngur í þeim. Leyfið börnum aldrei að leika sér
með vagninn eða dekkin.
• Almennar upplýsingar
• Öryggisleiðbeiningarnar og tilmælin í þessum leiðarvísi geta ekki náð utan um
öll möguleg skilyrði og ófyrirsjáanlegar aðstæður sem geta komið upp. Tekið
skal fram að almennt hyggjuvit, varúð og varfærni eru þættir sem geta ekki
verið innbyggðir í vöru. Þessir þættir eru á ábyrgð þess eða þeirra sem sjá um
og nota barnavagninn. Það er mikilvægt að allir sem nota barnavagninn og
fylgihlutina skilji leiðbeiningarnar og fari eftir þeim. Allir sem nota barnavag-
ninn verða að fá leiðbeiningar um notkun hans, jafnvel þótt viðkomandi muni
aðeins nota vagninn í stuttan tíma. Sjá verður til þess að allir notendur búi yfir
nauðsynlegri líkamsgetu og reynslu til þess að geta notað vöruna.
418
NXT 90/F v 3.4

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

Nxt90f

Tabla de contenido