DreamWear-gríma með silíkonpúðum
Notkunarleiðbeiningar
1
Öryggisupplýsingar
Fyrirhuguð notkun
Þessi gríma er fyrir meðferð með stöðugum jákvæðum loftvegaþrýstingi
(CPAP) eða tvískipta meðferð. Gríman er ætluð til endurtekinnar notkunar
hjá einum einstaklingi í heimahúsi eða til notkunar hjá fleiri einstaklingum
á sjúkrahúsi/-stofnun. Gríman er ætluð til notkunar hjá sjúklingum
(>30 kg) sem hafa fengið ávísaða meðferð með stöðugum jákvæðum
loftvegaþrýstingi (CPAP) eða tvískipta meðferð.
Athugasemdir:
• Hægt er að finna rafrænt afrit af þessum leiðbeiningum á
www.philips.com/IFU.
• Þessi gríma er ekki framleidd úr náttúrulegu gúmmílatexi eða DEHP.
Viðvörun: Gefur til kynna hættu fyrir notanda eða stjórnanda tækisins.
Varúð: Gefur til kynna að hugsanlegar skemmdir geti orðið á búnaðinum.
Viðvaranir
• Gríman er ekki ætluð sjúklingum sem háðir eru öndunarvél.
• Ef gríman er notuð meðan slökkt er á kerfinu getur útönduðu lofti verið
andað inn á ný. Enduröndun útandaðs lofts lengur en í nokkrar mínútur
getur í sumum tilfellum leitt til köfnunar.
• Hættið að nota vöruna og hafið samband við heilbrigðisstarfsfólk ef
einhverra eftirfarandi einkenna verður vart: roða á húð, ertingar, óþæginda,
þokusýnar eða augnþurrks.
227
íslenska