Philips RESPIRONICS DreamWear Silicone Pillows Mask Instrucciones De Uso página 239

Tabla de contenido

Publicidad

Tákn
Lýsing
Framleiðandi – framleiðandi
lækningatækisins
Rafrænar
notkunarleiðbeiningar –
gefur til kynna að viðeigandi
upplýsingar um notkun
www.philips.com/IFU
vörunnar eru fáanlegar á
rafrænu formi.
9 Takmörkuð ábyrgð
Respironics, Inc., fyrirtæki Philips („Philips Respironics") veitir þessa
óframseljanlegu takmörkuðu ábyrgð á DreamWear-grímu með silíkonpúðum
(„vörunni") þeim viðskiptavini sem upphaflega keypti vöruna beint af Philips
Respironics.
Það sem þessi ábyrgð nær til: Philips Respironics ábyrgist að hver ný vara
sé án framleiðslu- og efnisgalla og komi til með að starfa í samræmi við
vörulýsingar við eðlilega og rétta notkun og viðhald í samræmi við gildandi
leiðbeiningar, að teknu tilliti til neðangreindra útilokana.
Hversu lengi ábyrgðin gildir: Fyrir vöruna: Í níutíu (90) daga frá dagsetningu
sendingar til kaupanda eða dagsetningu uppsetningar kaupanda fyrir
endanlegan notanda, hvort sem kemur síðar. Ábyrgðartímabil aukahluta,
varahluta og einnota hluta, að meðtöldum hökuólum er níutíu (90) dagar frá
dagsetningu sendingar til upphaflegs kaupanda.
Það sem þessi ábyrgð nær ekki til: Þessi ábyrgð nær ekki til hugbúnaðar
sem fylgir með vörunni þar sem hugbúnaðarábyrgðin er hluti af
hugbúnaðarleyfinu. Ábyrgðin nær ekki til tjóns á vöru eða eignum, eða
meiðsla einstaklinga vegna slyss, rangrar notkunar, misnotkunar, hamfara,
íferðar vatns, viðgerða eða breytinga nokkurs annars aðila en Philips
Respironics eða viðurkennds þjónustuaðila, eða ef notkun er ekki í samræmi
við notkunarhandbók og -leiðbeiningar, ef eðlilegri umhirðu er ekki sinnt,
símafyrirtæki (t.d. ATT, Verizon o.s.frv.) hættir að bjóða netkerfi (t.d. 2G, 3G
o.s.frv.) eða annarra galla sem ekki tengjast efni eða framleiðslu. Ekki er hægt
að framselja þessa ábyrgð. Ef Philips Respironics telur vöru sem skilað er
vegna viðhalds eða vandamáls ekki falla undir þessa takmörkuðu ábyrgð má
Philips Respironics innheimta skoðunargjald og endursendingarkostnað.
Tákn
Lýsing
Lækningatæki – gefur til kynna
MD
að varan er lækningatæki.
Umbúðaeining – gefur til kynna
fjölda hluta í pakkningunni.
239

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido