Descargar Imprimir esta página

TOPRO Troja Walker2 M Instrucciones De Uso página 29

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 37
3
Opna / Leggja saman
Opna: Losaðu ólina sem er staðsett
á stuðningi fyrir framhandleggi (A) (á
ekki við um háa göngugrind í stærð X).
Losaðu klemmulásinn (smelluna) sem
er staðsettur á sætisstöngunum (B).
Ýttu sætisstöngunum niður og út (C).
Hliðargrindurnar munu renna í sundur.
Ýttu niður sætisstöngunum. Þú munt
heyra smell. Háa göngugrindin er núna
læst í opinni stöðu. Festu ólina (A).
Leggja saman: Losaðu ólina sem er
milli stuðnings fyrir framhandleggi
(A). Togaðu ólina á sætið (D) og ýttu
hliðargrindunum saman. Læstu
klemmunni (E) yfir sætisstangirnar.
Burður háu göngugrindarinnar: Háu
göngugrindina má ekki bera með því
að nota sætisólina eða bremsukapla.
Leggðu háu göngugrindina saman eins
og sýnt er á skýringarmyndinni (F). Berðu
háu göngugrindina með því að nota
sætisstangir (G) þegar hún er samanlögð.
4
Handföng
Hæðarstilling: Losaðu láshjólið (A) (um
það bil 2 snúningar). Stilltu stuðningsrör
framhandleggja í hentuga hæð, togaðu
þau síðan svolítið upp og niður (C),
þangað til að þú heyrir smell. Hertu
láshjólið (A) aftur. Stilltu bæði handföng
í sömu hæð. Ráðlögð hæð: Stattu
milli afturhjólanna. Slappaðu af í öxlum
og haltu olnbogum í 90 gráðu horni.
Hæð stuðnings fyrir framhandleggi
skal festa í sömu hæð og olnboga.
Fagaðili ætti að hjálpa þér með stillingu
á stuðningi fyrir framhandleggi og
handfanga til að tryggja rétta stöðu.
Stilling handfanga: Losaðu láshjólið (H).
Þú getur togað handfangið (B) aftur eða
ýtt því fram. Það er einnig mögulegt að
stilla horn handfangsins. Hertu láshjólið
(H) aftur þegar þú ert búinn að stilla
handfangið í nauðsynlega stöðu. Farðu
að með gát, svo þú klemmir ekki á þér
fingurna þegar þú losar/herðir láshjólið.
Minnisaðgerð: Ákveddu hæð á
stuðningsröri framhandleggja. Teldu
sjáanleg göt aftan á handfangsrörunum
(G). Losaðu láshjólið (A). Togaðu rörið (G)
út úr grindinni. Festingin (D) mun fylgja
handfangsrörinu. Færðu festinguna (D),
þannig að tala gatanna fyrir ofan er jöfn
áðurtöldum götum. Komdu rauða minni-
skubbnum (E) fyrir á handfangsrörinu í fyr-
sta tiltæka gatinu undir festingarstykkinu
(D). Ýttu handfangsrörinu (G) og festing-
arstykkinu (D) niður og inn í hliðargrindina
(F). Skrúfaðu láshjólið (A) hálfa leið inn.
Togaðu handfangið (G) upp, þangað til
að það stöðvast og hertu láshjólið (A)
tryggilega. Héðan í frá, þegar handfangið
er í lægstu stöðu, mun það stoppa í
forstilltri stöðu þegar það er togað upp.
5
Bremsur
Gakktu úr skugga um að bremsurnar
virki fyrir hverja ferð. Hver bremsustöng
(A) fyrir sig virkar á hvert afturhjól.
Ekki keyra eða ýta háu göngugrindinni
þegar stöðuhemlar eru í notkun!
Stöðuhemlar: Ýttu báðum bremsustöng-
um (A) niður, þangað til að þær læsast.
Vertu meðvitaður um að stöngin hefur
svolítið viðnám áður en hún stöðvar og
læsir afturhjóli. Togaðu bremsustan-
girnar aftur til að losa stöðuhemla.
Aksturshemlar: Togaðu báðar
bremsustangir (B) upp til að draga
úr hraða. Ekki nota stöðugt þegar
háa göngugrindin er á hreyfingu.
Stilling / Skoðun: Losaðu róna (C). Hertu
bremsukapalinn (D) með stilliskrúfunni
(E). Stilltu báða bremsuklossa (F) þannig
að fjarlægðin til yfirborðs hjólsins er um
það bil 1 mm og hertu róna (C). Gakktu
úr skugga um að bremsurnar séu ekki
stilltar of nálægt og ýti fast á gúmmí
hjólsins þegar stöðuhemillinn er á.
Viðhald: Þrífðu bremsuklossana (F) og
bremsufjöðrina (G) reglulega. Hægt
er að skipta um hjólin og bremsurnar
ef þau eru slitin eða skemmd.
6
Sæti
Háa göngugrindin er með öruggt og
þægilegt netsæti sem veitir yfirsýn
yfir leiðina sem gengin er. Auðvelt er
að þrífa það með klúti ef þess er þörf.
Stöðuhemlarnir verða að vera virkir
áður en sætið er notað. Ýttu báðum
bremsustöngum niður, þangað til að
þær læsast (A). Bæði hjól eru núna læst.
Sittu með bakið upp að körfunni (B).
7
Hlíf á brún / Hallaaðgerð
Hlíf á brún: Hlífar á brúnir (A), sem
eru framan við afturhjólin, koma
í veg fyrir að afturhjólin festist í
hornum, dyrakömrum, o.s.frv.
Hallaaðgerð: Til að nota hallaaðgerðina
skal nota framhluta fótarins og ýta niður
hallafótstiginu (B) sem er fyrir aftan af-
turhjólið. Þetta hjálpar til að halla háu gön-
gugrindinni yfir þröskulda, brúnir, o.s.frv.
Vinsamlegast athugaðu: Sýndu varkárni
þegar farið er yfir þröskulda o.s.frv.
25
TOPRO Troja Walker
Karfa
Burðargeta körfunnar er upp að
5 kílógrömmum. Það er hægt að
fjarlægja hana og þvo varfærnis-
lega við allt að 60° C hita.
Flutningur
Háu göngugrindina verður að flytja í
samanlagðri og læstri stöðu (sjá efnis-
greinina Opna / Leggja saman). Tryggðu að
klemmulásinn (smellan) sé á, þannig að
háa göngugrindin geti ekki opnast óvil-
jandi. Farðu varlega þegar þú kemur háu
göngugrindinni fyrir í ökutæki. Gakktu úr
skugga um að þú festir hana tryggilega.
Geymsla
Háu göngugrindina á að geyma í uppréttri
stöðu. Ef hún er geymd utandyra, verður
hún að vera undir hlíf til að verja hana.
Ekki skilja háu göngugrindina eftir án
eftirlits. Ekki setja þunga hluti ofan á háu
göngugrindina meðan á geymslu stendur.
Þrif
Best er að þrífa göngugrindina með
rökum klút. Ef mikil óhreinindi hafa safnast
upp á göngugrindinni má nota klút með
mildu þvottaefni við þrif og skola hana svo
með volgu vatni. Notið ekki háþrýstitæki
við þrif i á göngugrindinni og forðist
að sprauta beint á dekkin og gafflana
að framanverðu. Notið ekki sterk efni,
grófa klúta eða svampa á göngugrindina
né gufuþvott. Þurrkið göngugrindina
með því að nota mjúkan klút.
Sótthreinsun
Sótthreinsun má eingöngu vera
framkvæmd af viðurkenndum aðila. .
Vinsamlegast hafið samband við þinn
söluaðila eða hjálpartækjamiðstöð. . Við
sótthreinsun skal klæðast fullnægjandi
hlífðarfötum og fylgja skal leiðbeining-
um frá famleiðanda vörunnar. Yfirborð
göngugrindarinnar á alltaf að þrífa
með mjúkum klúti eða svampi og með
viðurkenndu sótthreinsiefni sem inni-
heldur 70–80% etanól. Við mælum ekki
með sótthreinsiefni sem inniheldur klór
eða fenól. Notið ekki heitt sótthreinsiefni.
Framleiðandi er ekki ábyrgur fyrir hvers
konar skemmdum sem geta átt sér stað með
skaðlegu sótthreinsiefni eða með sótthrein-
sun sem er ekki frá viðurkenndum aðila.
Art. No. User Manual: 105050 – Revision B, 2022-10
EN
2
NO
DE
NL
SV
DA
FI
IS
IS
FR
IT
ES
CS

Publicidad

loading

Este manual también es adecuado para:

Troja walker2 sTroja walker2 x815430815440815450