Descargar Imprimir esta página

geberit ESG LIGHT Manual De Operación página 136

Ocultar thumbs Ver también para ESG LIGHT:

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 64
IS
Mikilvæg öryggisatriði
Rétt notkun
Aðeins má nota Geberit rafsuðutækið ESG Light til að sjóða:
• Geberit Rafsuðumúffur ø 40–160 mm með Geberit PE og Geberit
Silent‑db20 rörum og fittings
• Geberit Rafsuðustrengi fyrir festistaði ø 50–315 mm með Geberit
PE rörum og fittings
Eingöngu má nota Geberit rafsuðutækið ESG Light samkvæmt
þessum notkunarleiðbeiningum. Öll önnur notkun telst vera röng og
getur leitt til alvarlegra meiðsla eða banaslysa.
Ekki má tengja Geberit rafsuðutækið ESG Light við veitukerfi
rafmagns nema með leyfi rafveitunnar.
Hæfniskröfur til notenda
Fái notendur ekki viðeigandi þjálfun eru þeir ekki færir um að greina
eða meta þær hættur sem stafað geta af Geberit rafsuðutækinu.
Þetta getur leitt til þess að notendur valdi sjálfum sér eða öðrum
alvarlegum áverkum.
• Geberit Eingöngu fagmenn á sviði röralagna mega nota
rafsuðutæki.
• Notendur verða að þekkja gildandi öryggisreglur í hverju landi og
fara eftir þeim.
• Áður en unnið er með Geberit rafsuðutækið í fyrsta skipti verður
notandinn að fá tilsögn í notkun þess hjá fagmanni eða sækja
viðeigandi námskeið.
• Þetta tæki mega hvorki þeir nota sem eru líkamlega eða andlega
fatlaðir eða sem skortir til þess reynslu og/eða þekkingu (börn
meðtalin), nema því aðeins að þeir séu undir eftirliti einhvers sem
sér um öryggi þeirra eða hafi hlotið leiðsögn þessa aðila um það
hvernig nota skuli tækið.
Hafa skal auga með börnum þannig að tryggt sé að þau leiki sér
ekki að tækinu.
136
63050397048849803 © 02-2023
967.779.00.0(02)

Publicidad

loading