Descargar Imprimir esta página

3M DBI-SALA 8000096 Manual Del Usuario página 55

Ocultar thumbs Ver también para DBI-SALA 8000096:

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 28
3.0
UPPSETNING
3.1
SKIPULAGNING: Skipulegðu fallvarnarkerfi þitt fyrir uppsetningu á High Capacity (HC) Davit Base. Taktu tillit til allra
þátta sem geta haft áhrif á öryggi þitt fyrir, á meðan og eftir fall. Íhugaðu allar kröfur sem skilgreindar eru í kafla 2 og
töflu 1 til að ákvarða réttar festingar og staðsetningu fyrir HC Davit Base á festistað.
Festingar: Festistaður sem HC Davit Base er festur við þarf að uppfylla kröfur um festivægi sem tilgreindar eru í
kafla 2 og álagsvægi og lóðrétt álag í töflu 1.
Val á festingu: Mynd 3 sýnir staðsetningar á festigötum á HC Davit Base. Veldu festingu sem er viðeigandi fyrir
festistað og efnisþykkt (B). Festingar verða að uppfylla kröfur um styrkleika togunar sem tilgreindar eru í töflu 1 og
vera valdar af hæfum aðila.
Staðsetning HC Davit Base: Mynd 3 sýnir staðsetningu HC Davit Base á láréttum fleti. Láttu HC Davit Base vera í
fjarlægð frá jaðri flatar sem er í samræmi við ráðlagða lengd framleiðanda (A). Komdu HC Davit Base lóðrétt fyrir en
vikmörk eru plús eða mínus 1° frá því lóðrétta.
3.2
HC DAVIT BASE KOMIÐ FYRIR: Mynd 4 lýsir uppsetningu á HC Davit Base. Festu HC Davit Base á gólfi steinsteypu-
eða stálsmíðar sem uppfyllir styrktarkröfur HC Davit Base sem finna má í töflu 1 og valinna festinga.
1.
Staðsettu HC Davit Base upprétt á lóðréttum fleti og fylgdu ráðlagðri fjarlægð framleiðanda festingar frá brúninni.
Merktu og boraðu öll festigöt í samræmi við ráðlagt þvermál og dýpt framleiðanda.
2.
Festu HC Davit Base við festimannvirki með völdum festingum eins og lýst er í leiðbeiningum framleiðanda um
festingar.
3.
Eftir uppsetningu á HC Davit Base, og fyrir uppsetningu á HC Davit í HC Davit Base, skal skoða HC Davit Base í
samræmi við skoðunarpunkta 'hæfs aðila' og „Eftirlits- og viðhaldsskrá". Ef eftirlit leiðir í ljós óöruggt eða gallað
ástand skal taka HC Davit Base tafarlaust úr notkun, merkja hana vel eða farga til að koma í veg fyrir notkun fyrir
slysni og hafa samband við 3M varðandi endurnýjun.
4.
Komdu HC Davit fyrir í HC Davit Base í samræmi við leiðbeiningarnar sem fylgja HC Davit.
4.0
NOTKUN
4.1
FYRIR SÉRHVERJA NOTKUN: Staðfestu að vinnusvæði þitt og persónulegt fallstöðvunarkerfi (PFAS) uppfylla öll viðmið í
kafla 2 og að formleg björgunaráætlun sé til staðar. Skoðaðu HC Davit Base í samræmi við skoðunarpunkta 'notanda' sem
skilgreindir eru í „Eftirlits- og viðhaldsskrá". Ef skoðun leiðir í ljós óöruggt eða gallað ástand skal ekki nota kerfið. Taktu
kerfið úr notkun og fargaðu því eða hafðu samband við 3M varðandi endurnýjun eða viðgerð.
5.0
EFTIRLIT
5.1
EFTIRLITSTÍÐNI: Eftirlit með HC Davit Base þarf að eiga sér stað á samkvæmt tíðni sem skilgreind er í kafla 1.
Eftirlitsferli er lýst í „Eftirlits- og viðhaldsskrá". Skoðaðu alla aðra hluta fallvarnarkerfisins í samræmi við tíðni og ferli sem
skilgreint er í leiðbeiningum framleiðanda.
5.2
GALLAR: Ef eftirlit leiðir í ljós óöruggt eða gallað ástand skal taka HC Davit Base tafarlaust úr notkun og hafa samband
við 3M varðandi endurnýjun eða viðgerðir. Ekki reyna að gera við fallstöðvunarkerfið. Pantaðu nýjar merkingar fyrir HC
Davit Base ef fyrirliggjandi merkingar eru gallaðar.
;
Aðeins viðurkenndar viðgerðir: Einungis 3M fyrirtækið eða aðilar sem hafa skriflegt umboð frá því mega gera við
þennan búnað.
5.3
LÍFTÍMI VÖRU: Virknistími fallstöðvunarkerfisins ræðst af vinnuaðstæðum og viðhaldi. Nota má áfram vöruna svo lengi
sem hún stenst eftirlitsviðmið.
6.0
VIÐHALD, ÞJÓNUSTA OG GEYMSLA
6.1
HREINSUN: Hreinsaðu málmhluta HC Davit Base með reglubundnum hætti með mjúkum bursta, volgu vatni og mildri
sápulausn. Tryggðu að hlutarnir séu skolaðir vandlega með hreinu vatni.
6.2
VIÐHALD Einungis 3M eða aðilar sem hafa skriflegt umboð frá 3M mega gera við þennan búnað. Ef HC Davit Base hefur
orðið fyrir höggi eða eftirlit leiðir í ljós óöruggt eða gallað ástand skal taka kerfið úr notkun og hafa samband við 3M
varðandi endurnýjun eða viðgerðir.
6.3
GEYMSLA OG FLUTNINGUR: Þegar kerfið er ekki í notkun skal geyma og flytja HC Davit Base og tengdan
fallvarnarbúnað á köldum, þurrum og hreinum stað fjarri beinu sólarljósi. Forðastu svæði þar sem efnagufur geta verið til
staðar. Skoðaðu vandlega hlutana eftir langa geymslu.
55

Publicidad

loading

Este manual también es adecuado para:

Dbi-sala 8000095