Hallde SB-4 Instrucciones De Uso página 26

Ocultar thumbs Ver también para SB-4:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 14
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
HÄLLDE SB-4
(IS)
AÐVÖRUN
Við flutning á vélinni, fellið niður
lokið/lokfestinguna (3E/H) svo að
kannan (3I) lokist alveg og takið
um handfangið (1A) þegar vélinni
er lyft.
Varið ykkur á hvössum hnífum (3J)
í botni könnunnar.
Stingið aldrei höndum né neinum
verkfærum ofan í könnuna þegar
vélin er í gangi.
Verið alltaf viðbúin slettum úr
vélinni og gætið þess að hættulegt
getur verið að vinna með allt of
heita vökva o.þ.h.
Slökkvið á vélinni og takið hana
úr sambandi áður en vélarhúsið
(3K) er þrifið.
Vélarhúsið inniheldur rafhluta;
það má því ekki þvo í
uppþvottavél né dýfa í vatn.
Engan hluta vélarinnar má þvo
með háþrýstisprautu.
Aðeins löggiltum fagmönnum er
heimilt að gera við vélina og opna
vélarhúsið.
ÚTPÖKKUN
Gangið úr skugga um að allir hlutar fylgi
vélinni, að vélin sé í lagi og að ekkert hafi
skemmst í flutningi. Athugasemdir verða að
hafa borist seljanda innan átta daga.
UPPSETNING
Tengið vélina við rafstraum með
réttri uppgefinni spennu. Sjá liðinn
"TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR SB-4".
Gangið úr skugga um að hnífabúnaður
(3J) hætti að snúast innan 4 sekúndna eftir
að lokinu/lokfestingunni (3E/H) hefur verið
lyft.
Setjið upp könnuna (3I) og lokið (sjá liðinn
"SAMSETNING"). Leggið niður lokið/
lokfestinguna. Gangsetjið vélina. Opnið
lokið/lokfestinguna hægt og gangið úr
skugga um að vélin stöðvist áður en opið
milli könnubrúnar og loks er orðið stærra
en 30 mm.
Fjarlægið könnuna og lokið. Fellið
lokfestinguna niður í lægri smellistöðu
sína. Snúið hraðastilli (2D) í stöðu "2" og
L
gangið úr skugga um að vélin fari þá ekki
í gang.
Ef misbrestur er á einhverju þessara þriggja
atriða ber að kalla til viðgerðarmann áður
en vélin er tekin í notkun.
OLÍUDREYPIR (3G)
Olíudreypirinn er ætlaður til að skammta
matarolíu eða dreypa henni hægt inn, t.d.
þegar majones er búin til meðan vélin er í
gangi.
Þegar þörf er á, festið olíudreypinn (3G)
með því að þrýsta honum fast inn í opið
ofan á lokinu (3F) og snúa honum réttsælis
eins langt og hægt er.
Lyftið lokfestingu (3H) í efri smellistöðu
sína og færið lokið (3E) inn í lokfestinguna
þannig að lokið hvíli í lokfestingunni.
Leggið könnuna (3I) á vélina þannig að
kannan hvíli þétt á undirstöðunum fjórum
(3M).
Fellið lokið/lokfestinguna alveg niður
þangað til það stöðvast.
Lyftið loki/lokfestingu (3E/H) upp í efri
smellistöðu sína.
Fjarlægið lokið af lokfestingunni.
Fjarlægið olíudreypinn af lokinu með því
að snúa olíudreypinum rangsælis þangað
til hann stöðvast og draga hann síðan upp.
Lyftið könnunni af vélinni.
HRAÐASTILLIR (2D)
Í stöðu "0" er slökkt á vélinni.
Í stöðu "1" vinnur vélin hægast, síðan
eykst hraðinn með hærri tölu og er hæstur
í stöðu "6".
Eftir að lokinu hefur verið lyft og
öryggisrofinn hefur stöðvað vélina verður
fyrst að snúa hraðastilli í stöðu "0" og
síðan í stöðu "1" eða hærra til að vélin fari
aftur í gang.
SNÖGG HRAÐASTILLING,
SPF er notað við stutta vinnslu á
SAMSETNING
LOSUN
"SPF" (2C)
hámarkshraða.
Jafnskjótt og ýtt er á SPF-hnappinn
(2C) eykst hraðinn beint frá því
sem hraðastillirinn segir til um upp í
hámarkshraða.
SPF verkar ekki þegar hraðastillirinn (2D)
er í stöðu "0".
ALMENN RÁÐ FYRIR FLJÓTAN
OG GÓÐAN ÁRANGUR
Til að koma í veg fyrir að vökvi drjúpi á
bakhlið vélarinnar, lyftið aðeins lokinu/
lokfestingunni (3E/H) upp í efri smellistöðu
sína og ekki til fulls eins langt og unnt er.
Notið aðeins SB-4 til að blanda, þeyta,
hræra, hakka og stappa vökvaríkar
blöndur eins og sósur, súpur, jafninga,
deig, kryddlög, majones, ábætisrétti,
ávaxtadrykki, kokkteila, mjólkurhristing
o.s.frv.
Notið svo mikinn vökva að blandan sé
allan tímann hreyfanleg og léttfljótandi.
Hellið vökvanum í fyrst og bætið föstum
efnum (líka ísmolum) í þar á eftir.
Notið aldrei stærri ísmola en þá sem búnir
eru til í venjulegum ísvélum.
Skerið fyrst fasta hráefnið í um það bil
jafnstóra bita, ekki stærri en svo að vélin
geti auðveldlega unnið á þeim.
Látið fasta hráefnið í vélina í smáskömmtum
en ekki allt í einu.
Fyllið aldrei könnuna af meira magni en
svo að vélin vinni auðveldlega á því.
Sjáið til þess að magn í könnunni fari aldrei
yfir efstu merkingu á henni og munið að
magn hráefnisins eykst yfirleitt í vinnslunni.
Veljið hraðastillingu sem myndar loftsúlu í
könnunni miðri.
Notið opið á lokinu (3F) til að bæta við
efnum meðan vélin er í gangi.
Þegar majones er búin til, bætið þá
olíunni síðast við í smáskömmtum með
olíudreypinum (3G).
Til að koma í veg fyrir slettur, haldið
hendinni yfir opinu (3F) eða festið
olíudreypinn (3G).
HREINSUN
Hreinsið vélina alltaf strax eftir notkun.
Notið aldrei oddhvöss verkfæri né
háþrýstisprautu.
Hreinsið aldrei vélarhúsið (3K) með

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido