– Þegar hleðslusnúran er ekki í notkun skal geyma
hana í þar til ætlaðri höldu og festa hleðsluklóna.
Vefja skal hleðslusnúrunni lauslega utan um
hölduna þannig að hún snerti ekki gólfið.
– Gætið þess að ekki sé hætta á að ekið sé yfir
hleðslusnúruna og hleðsluklóna, þær klemmist
eða verði fyrir öðru hnjaski.
Öryggisupplýsingar varðandi
2.3
uppsetningu
– Fylgja skal leiðbeiningunum í þessum stutta
leiðarvísi svo tryggt sé að uppsetning fari fram
með öruggum hætti.
– Virðið gildandi lagakröfur um raflagnir, eldvarnir,
öryggisreglur og flóttaleiðir á fyrirhuguðum
uppsetningarstað.
– Aðeins má nota meðfylgjandi uppsetningarbúnað.
– Þegar tækið er opnað skal gera viðeigandi
ráðstafanir til að koma í veg fyrir
IS
rafstöðuafhleðslu.
– Við meðhöndlun á prentplötum sem eru
viðkvæmar fyrir stöðurafmagni skal nota jarðtengd
afrafmagnandi armbönd og gera viðeigandi
ráðstafanir til að koma í veg fyrir
rafstöðuafhleðslu. Aðeins má bera armbönd við
uppsetningu og tengingu á hleðslubúnaðinum.
Aldrei má bera armbönd hjá Webasto Next sem
spenna er á.
– Rafvirkjar verða að vera jarðtengdir með
viðeigandi hætti á meðan uppsetning á Webasto
Next fer fram.
– Ekki má setja Webasto Next upp á svæði þar sem
er sprengihætta (Ex-svæði).
– Setja skal Webasto Next upp með þeim hætti að
hleðslusnúran sé ekki fyrir.
– Ekki má setja Webasto Next upp í umhverfi þar
sem ammoníak eða loft sem inniheldur ammoníak
er fyrir hendi.
– Ekki má setja Webasto Next upp á stað þar sem
hætta er á að hlutir falli á hana og hún verði fyrir
skemmdum.
124
– Webasto Next hentar til notkunar innan- og
utandyra.
– Ekki má setja Webasto Next upp nálægt búnaði
sem sprautar vatni, t.d. bílaþvottastöðvum,
háþrýstidælum eða garðslöngum.
– Verja skal Webasto Next fyrir skemmdum af
völdum frosts, hagléls eða álíka. Hvað þetta varðar
vekjum við athygli á IP-varnarflokki okkar (IP54).
– Webasto Next hentar til notkunar á svæðum þar
sem aðgengi er ekki takmarkað.
– Verja skal Webasto Next fyrir beinu sólarljósi. Hátt
hitastig getur minnkað hleðslustrauminn eða
jafnvel stöðvað hleðsluna.
Vinnsluhitastig 11 KW útfærslunnar er -30 °C til
+55 °C.
Vinnsluhitastig 22 KW útfærslunnar er -30 °C til
+45 °C.
– Velja skal uppsetningarstað Webasto Next með
það í huga að ekki sé hætta á að bílar keyri á
hana. Ef ekki er hægt að útiloka skemmdir verður
að gera viðeigandi varúðarráðstafanir.
– Ef Webasto Next verður fyrir skemmdum við
uppsetningu má ekki taka hana í notkun, heldur
verður að skipta um tækið.
2.4
Öryggisupplýsingar varðandi tengingu
við rafmagn
VIÐVÖRUN
– Virðið gildandi lagakröfur um raflagnir, eldvarnir,
öryggisreglur og flóttaleiðir á fyrirhuguðum
uppsetningarstað. Fylgið gildandi reglum um
uppsetningu í hverju landi.
– Hver hleðslustöð verður að vera varin með eigin
lekastraumsrofa og sjálfvari í rafkerfinu sem hún er
tengd við. Sjá Kröfur til uppsetningarstaðar.
– Áður en hleðslustöðin er tengd við rafmagn skal
ganga úr skugga um að ekki sé spenna á
rafmagnstengingum.
– Þegar hleðslustöðin er sett í gang í fyrsta sinn skal
ekki tengja bíl við hana strax.
– Gangið úr skugga um að notaður sé réttur
rafstrengur fyrir tengingu við veitukerfi rafmagns.
– Skiljið hleðslustöðina ekki eftir án eftirlits með
uppsetningarhlífina opna.
– Þegar stillingu DIP-rofa er breytt verður að vera
slökkt á búnaðinum.
– Gætið að mögulegri tilkynningaskyldu gagnvart
rafveitu.
2.5
Öryggisupplýsingar varðandi fyrstu
gangsetningu
VIÐVÖRUN
– Rafvirki verður að sjá um að taka hleðslustöðina í
notkun.
– Áður en hleðslustöðin er tekin í notkun skal rafvirki
ganga úr skugga um að hún sé rétt tengd.
– Áður en hleðslustöðin er tekin í notkun skal
athuga með sýnilega ágalla eða skemmdir á
hleðslusnúrunni, hleðsluklónni og hleðslustöðinni.
Ef skemmdir eru á hleðslustöðinni, hleðslusnúrunni
eða hleðsluklónni má ekki taka búnaðinn í notkun.
2.6
Öryggistengd LED-villuljós
Villu-boð
Lýsing
LED-ljósið logar stöðugt í rauðum lit og
F6
hljóðmerki heyrist í 0,5 sekúndur. Eftir það
heyrist hljóðmerki í 5 sekúndur með
1 sekúndu hléi á milli:
Vandamál hefur komið upp með spennu- eða
kerfisvöktun.
Hætta er á banvænu raflosti.
Takið rafmagnið af hleðslustöðinni í rafkerfi
hússins og komið í veg fyrir að hægt sé að
setja það aftur á í ógáti. Ekki taka
hleðslusnúruna úr sambandi við bílinn fyrr en
að því loknu.
5111233A_ISI_Next