Descargar Imprimir esta página

geberit 115907KJ6 Manual página 219

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 108
Öryggi
Um þetta skjal
Þetta skjal leiðbeinir um faglegt viðhald á Geberit þvagskálastýringu með rafrænni skolstjórnun sem
er tengd við rafmagn eða gengur fyrir rafhlöðum, stjórnplata Sigma10.
Þetta skjal á við um útfærslu salernisstýringarinnar með Bluetooth®tengingu. Þessi salernisstýring er
merkt á merkiplötunni með „BAWC-04-A" eða „BAWC-04-B" og Geberit Connect-
kennimerkismerkingu.
Markhópur
Eingöngu fagfólk má annast viðhald og viðgerðir á þessari vöru. Fagaðili er sá sem býr að faglegri
menntun, þjálfun og/eða reynslu sem gerir viðkomandi kleift að greina og forðast hættur sem stafað
geta af notkun vörunnar.
Rétt notkun
Geberit salernisstýring með rafrænni skolstjórnun, sem er tengd við rafmagn eða gengur fyrir
rafhlöðum og með Sigma10 stjórnplötu, er ætluð til að setja skolun af stað í innfelldum
Geberit Sigma vatnskössum.
Öryggisupplýsingar
• Notið eingöngu upprunalega varahluti til viðgerða.
• Ekki skal breyta vörunni eða bæta neinu við hana.
Yfirlit yfir viðvaranir og tákn í þessum leiðbeiningum
Viðvaranir og tákn
ATHUGIÐ
Gefur til kynna hættu sem getur leitt til tjóns ef ekki er komið í veg fyrir hana.
Bendir á mikilvægar upplýsingar.
9007203771121035 © 04-2022
970.755.00.0(00)
IS
219

Publicidad

loading

Este manual también es adecuado para:

Sigma10115909sn6