3M DBI-SALA LAD-SAF Manual Del Usuario página 87

Tabla de contenido

Publicidad

D.
UPPSETNING Á W1 KERFI:
Sjá mynd 7 til að sjá dæmigerða uppsetningu á W1 kerfi á viðarstöng. Toppfestingin á að vera þannig staðsett að öryggi
notandans sé tryggt þegar hann tengir sig eða aftengir sig kerfinu. Nota skal 1/2 tommu skrúflykla (fylgja ekki með) til að
festa toppfestinguna við stöngina. Festingar eiga að ná í gegnum stöngina ef hægt er. 3M DBI-SALA mælir með því að nota
læstar skinnur, tvöfaldar skrúfur eða aðrar aðferðir til að tryggja að festingar geti ekki losnað.
E.
UPPSETNING Á CE1 KERFI:
Sjá mynd 8 til að sjá dæmigerða uppsetningu á CE1 kerfi. Toppfestingin á að vera þannig staðsett að öryggi notandans sé
tryggt þegar hann tengir sig eða aftengir sig kerfinu.
Verkferli við uppsetningu:
1.
Toppfesting: Renna skal rimaklemmum (B) yfir slöngu og setja upp festingar eins og sýnt er. Festa skal festingar með
snúningi eins og tilgreint er.
2.
Botnfesting: Setja skal upp festingar eins og sýnt er. Festa skal festingar með snúningi eins og tilgreint er.
D.
UPPSETNING Á T1 KERFI:
Sjá mynd 9 til að sjá dæmigerða uppsetningu á T1 kerfi. Toppfestingin skal vera staðsett þannig að hún gefi notendum
öruggan aðgang þegar verið er að tengja sig eða aftengja sig kerfinu. Dæmigerð notkun kerfis er þegar setja þarf stiga í
brunna eða undir tröppudyr. Ekki skal nota aðrar festingar en frá framleiðanda.
Verkferli við uppsetningu:
1.
Toppfesting: Setja skal upp klemmuplötur og festingar eins og sýnt er. Festa skal festingar með snúningi eins og
tilgreint er.
2.
Botnfesting: Setja skal upp festingar eins og sýnt er. Festa skal festingar með snúningi eins og tilgreint er.
3.5
UPPSETNING Á BURÐARKAPLI OG SAMSETNINGU HANS TIL TOPPFESTINGAR:
A.UPPSETNING Á BURÐARKAPLI OG SAMSETNINGU HANS:
1.
Leggja skal burðarkapalinn og samsetningu hans á jörðina á hreinu svæði með því að rúlla út kapalkeflinu. Ekki skal toga
kapalinn frá miðju keflisins. Í sumum uppsetningum er auðveldara að láta burðarkapalinn síga frá efstu tengingunni niður
að botnfestingunni. Ef svo er skal láta kapalinn síga varlega án þess að kapallinn bogni eða fari í sveigju við toppfestinguna.
Ekki skal láta kapalinn detta niður í lægri stöðu.
; Burðarkapallinn er mjög stífur og hann getur sprottið skyndilega og óvænt út úr keflinu. Gæta skal fyllstu
varúðar þegar verið er að taka kapalinn af keflinu. Nota skal viðeigandi persónuhlífar, þ.m.t. hanska og
öryggisgleraugu þegar verið er að taka kapalinn af keflinu.
Skoða skal burðarkapalinn með tilliti til flutningstjóns áður en lengra er haldið. Ekki skal setja upp skemmdan kapal.
2.
Sjá mynd 11 til að sjá uppsetningu burðarkapalsins yfir í toppfestinguna. Tryggðu að endi kapalsins sé óheftur af beygjum og
búið sé að greiða úr öllum sveigjum.
Verkferli við uppsetningu: Settu dráttarenda (C) burðarkapalsins inn í hlið toppplötusniðsins (B). Hornið á að vera u.þ.b. 45
gráður á meðan það þrýstir á móti fjaðurhliðinu (D). Litli pinninn (E) og fjaðurhliðið (D) eru hönnuð þannig að þau eiga að
koma í veg fyrir að dráttarendi burðarkapalsins aftengist skyndilega toppplötunni (B). Tryggðu að einungis stóri pinninn (A)
hvíli innan í toppplötunni (B).
3.6
UPPSETNING Á KAPALBRAUTUM, ALLAR GERÐIR:
Kapalbrautir vernda burðarkapalinn gegn því að hann núist utan í vinnupallana og koma í veg fyrir að klifrarinn sveifli kaplinum of
mikið frá einni hlið til annarrar. Kapalbrautir eiga að vera staðsettar u.þ.b. 6-12 m (20-40 fet) eftir burðarkaplinum endilöngum á
milli toppfestingarinnar og botnfestingarinnar og á hverjum þeim punkti í kerfinu þar sem kapalinn getur núist við vinnupallana.
Raða skal kapalbrautum upp niður eftir kerfinu til að koma í veg fyrir vindálag, eins og með 7,01 (23), 7,61 (25), og 8,23 (27) m
(feta) millibili. Á svæðum þar sem er mikill vindur, má nota kapalbrautir sem líta út eins og L. Slíkar L-kapalbrautir geta opnast til
skiptis til vinstri og hægri upp eftir vinnupöllunum. Einnig er hægt að nota kapalbrautir með festingum.
Bein tenging við vinnupalla:
Sjá mynd 12 til að sjá dæmigerða uppsetningu á kapalbrautum. Sumar kapalbrautir nota rimafestingar og klemmuplötur meðan
aðrar gera það ekki (sjá mynd 12). Setja skal upp kapalbrautir með því að nota þann vélbúnað sem er lagður fram. Ekki skal nota
aðrar festingar en frá framleiðanda. Festa skal festingar með snúningi upp að 27-34 N-m (20-25 fet-pund).
3.7
AÐ STREKKJA KAPALINN Í KERFINU:
; Hugsanlega er nauðsynlegt að endurstrekkja kerfið öðru hverju. Þetta er háð lengd þess og því umhverfi þar
sem það er uppsett. Mjög mikið hitastigsmunur og mjög löng kerfi gera kröfu um endurstrekkingu öðru hverju.
Að stilla og strekkja burðarkapalinn:
1.
Sjá mynd 10. Þræða skal strekkingarskrúfu (A) á enda strekkingarstangar (B) þannig að 3-5 þræðir sjást fyrir neðan
skrúfuna. Setja skal kapalinn inn í söðulklemmurnar (C). Lyfta skal upp strekkingarsamsetningunni þar til strekkingarskrúfan
kemur út um botnskinnuna (D). Festa skal söðulklemmur og festa með snúningi allt að 47,5 N-m (35 fet-pund) eða . Festa
skal og strekkja þangað til rauf (E) kemur í ljós fyrir ofan toppfestinguna. Festa skal j-skrúfu (F) á móti strekkingarskrúfunni.
Skera skal burt allan auka kapal rétt fyrir neðan lægri söðulklemmuna.
4.0 AUÐKENNING OG SKOÐUN EFTIR UPPSETNINGU KERFIS:
A.
Komdu uppsetningunni fyrir og settu upp þjónustumerkingu á stigann eða á vinnupallinn á áberandi stað. Notaðu stálvírinn
sem fylgir með merkingunni til að festa merkinguna við vinnupallinn. Áður en merking er sett upp skal athuga eftirfarandi:
Uppsetningardagur
Uppsett af
Hámarks fjöldi notanda á hverju kerfi
Lengd kerfis
Notaðu málmstimpil með bókstöfum til að merkja merkimiðann. Skráðu auðkennisupplýsingar kerfis í uppsetningargátlistann
í lok þessar handbókar.
DISTRIBUTED BY CAI SAFETY SYSTEMS | Phone: (888) 246 6999 | Web: caisafety.com | Email: info@caisafety.com
87

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido