Descargar Imprimir esta página

TOPRO Troja Original Instrucciones De Uso página 29

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 37
3
Opna / Leggja saman
Opna: Losaðu klemmulásinn (smelluna)
sem er staðsettur á sætisstöngunum
(A). Ýttu sætisstöngunum niður og
út. Hliðargrindurnar munu renna í
sundur. Ýttu niður sætisstöngunum (B).
Þú munt heyra smell. Göngugrindin
er núna læst í opinni stöðu.
Leggja saman: Settu ólina á sætið (C)
og ýttu hliðargrindunum saman. Læstu
klemmunni (D) yfir sætisstangirnar.
Burður göngugrindarinnar:
Göngugrindina má ekki bera með því
að nota sætisólina eða bremsukapla.
Leggðu göngugrindina saman eins og
sýnt er á skýringarmyndinni (E). Berðu
göngugrindina með sætisstöngum
(F) þegar hún er samanlögð.
4
Handföng / Minnisaðgerð
Hæðarstilling: Losaðu láshjólið (A) (um
það bil 2 snúningar). Stilltu handfangsrör
í hentuga hæð, togaðu þau síðan svolítið
upp og niður (C), þangað til að þú heyrir
smell. Hertu láshjólið (A) aftur. Stilltu bæði
handföng í sömu hæð með því að bera
saman tölurnar á hverri hlið. Það er mælt
með því að handföngin séu stillt í sömu
hæð og úlnliðir þínir, þegar handleggirnir
þínir hanga niður með líkama þínum.
Minnisaðgerð: Ákveddu hæð á
handföngum (sjá tölurnar). Teldu
sjáanleg göt aftan á handfangsrörunum.
Losaðu láshjólið (A). Togaðu rörið (B) út
úr grindinni. Festingin (D) mun fylgja
handfangsrörinu. Færðu festinguna
(D), þannig að tala gatanna fyrir ofan
er jöfn áðurtöldum götum. Komdu
rauða minniskubbnum (E) fyrir á
handfangsrörinu í fyrsta tiltæka gatinu
undir festingarstykkinu (D). Ýttu
handfangsrörinu (B) og festingarstykkinu
(D) niður og inn í hliðargrindina (F).
Skrúfaðu láshjólið (A) hálfa leið inn.
Togaðu handfangið (G) upp, þangað
til að það stöðvast og hertu láshjólið
(A) rétt. Héðan í frá, þegar handfangið
er í lægstu stöðu, mun það stoppa í
forstilltri stöðu þegar það er togað upp.
5
Bremsur
Gakktu úr skugga um að bremsurnar
virki fyrir hverja ferð. Hver bremsustöng
(A) fyrir sig virkar á hvert afturhjól.
Ekki keyra eða ýta göngugrindinni
þegar stöðuhemlar eru í notkun!
Stöðuhemlar: Ýttu báðum
bremsustöngum (A) niður, þangað
til að þær læsast. Bæði hjól eru núna
læst. Kreistu báðar bremsustangir
upp til að losa stöðuhemla.
Aksturshemlar: Togaðu báðar
bremsustangir (B) upp til að draga
úr hraða. Ekki nota stöðugt þegar
göngugrindin er á hreyfingu.
Stilling / Skoðun: Losaðu róna (C). Hertu
bremsukapalinn (D) með stilliskrúfunni
(E). Stilltu báða bremsuklossa þannig að
fjarlægðin til yfirborðs hjólsins er um það
bil 1 mm (F) og hertu róna (C). Gakktu
úr skugga um að bremsurnar séu ekki
stilltar of nálægt og ýti fast á gúmmí
hjólsins þegar stöðuhemillinn er á.
Viðhald: Þrífðu bremsuklossana (F) og
bremsufjöðrina (G) reglulega. Hægt
er að skipta um hjólin og bremsurnar
ef þau eru slitin eða skemmd.
6
Sæti
Göngugrindin er með öruggt og þægilegt
netsæti sem veitir yfirsýn yfir leiðina sem
gengin er. Auðvelt er að þrífa það með
klúti ef þess er þörf. Stöðuhemlarnir verða
að vera virkir áður en sætið er notað. Ýttu
báðum bremsustöngum niður, þangað
til að þær læsast (A). Bæði hjól eru núna
læst. Sittu með bakið upp að körfunni (B).
7
Hlíf á brún / Hallaaðgerð
Hlíf á brún: Hlífar á brúnir (A) sem
eru framan við afturhjólin koma
í veg fyrir að afturhjólin festist í
hornum, dyrakömrum, o.s.frv.
Hallaaðgerð: Til að nota hallaaðgerðina
skal nota framhluta fótarins og ýta
niður hallafótstiginu (B) sem er fyrir
aftan afturhjólið. Þetta hjálpar til að
halla göngugrindinni yfir þröskulda,
brúnir, o.s.frv. Vinsamlegast athugaðu:
Farðu varlega þegar gengið er
yfir gangstéttarbrúnir o.s.frv.
25
TOPRO Troja Original
Karfa
Burðargeta körfunnar er upp að
10 kílógrömmum (tegund M & S)
/ 5 kílógrömmum (tegund X). Það
er hægt að fjarlægja hana og þvo
varfærnislega við allt að 60° C hita.
Flutningur
Göngugrindina verður að flytja í
samanlagðri og læstri stöðu (sjá
efnisgreinina 3 Opna / Leggja saman).
Tryggðu að klemmulásinn (smellan) sé á,
þannig að göngugrindin geti ekki opnast
óviljandi. Farðu varlega þegar þú kemur
göngugrindinni fyrir í ökutæki. Gakktu úr
skugga um að þú festir hana tryggilega.
Geymsla
Göngugrindina á að geyma í uppréttri
stöðu. Ef hún er geymd utandyra,
verður hún að vera undir hlíf til að verja
hana. Ekki skilja göngugrindina eftir án
eftirlits. Ekki setja þunga hluti ofan á
göngugrindina meðan á geymslu stendur.
Þrif
Best er að þrífa göngugrindina með
rökum klút. Ef mikil óhreinindi hafa safnast
upp á göngugrindinni má nota klút með
mildu þvottaefni við þrif og skola hana svo
með volgu vatni. Notið ekki háþrýstitæki
við þrif i á göngugrindinni og forðist
að sprauta beint á dekkin og gafflana
að framanverðu. Notið ekki sterk efni,
grófa klúta eða svampa á göngugrindina
né gufuþvott. Þurrkið göngugrindina
með því að nota mjúkan klút.
Sótthreinsun
Sótthreinsun má eingöngu vera
framkvæmd af viðurkenndum aðila. .
Vinsamlegast hafið samband við þinn
söluaðila eða hjálpartækjamiðstöð. . Við
sótthreinsun skal klæðast fullnægjandi
hlífðarfötum og fylgja skal leiðbeiningum
frá famleiðanda vörunnar. Yfirborð
göngugrindarinnar á alltaf að þrífa
með mjúkum klúti eða svampi og
með viðurkenndu sótthreinsiefni
sem inniheldur 70–80% etanól. Við
mælum ekki með sótthreinsiefni sem
inniheldur klór eða fenól. Notið ekki
heitt sótthreinsiefni. Framleiðandi er
ekki ábyrgur fyrir hvers konar skemmdum
sem geta átt sér stað með skaðlegu
sótthreinsiefni eða með sótthreinsun
sem er ekki frá viðurkenndum aðila.
Art. No. User Manual: 105035 – Revision C, 2022-08
EN
EN
NO
NO
DE
DE
NL
NL
SV
SV
DA
DA
FI
FI
IS
IS
IS
FR
FR
IT
IT
ES
ES

Publicidad

loading