Descargar Imprimir esta página

BATEC HIBRID 2 Manual Del Usuario página 390

Ocultar thumbs Ver también para HIBRID 2:

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 1
Til viðbótar við öll þau öryggiskerfi sem eru til staðar, til að draga enn
frekar úr hættu ef vandamál kemur upp í búnaði utan við rafhlöðuna,
svo sem röng virkni í rafmagnstengjum eða vandamál í rafmagnsdrei-
fikerfinu sem slíku, þá mælum við með að fara vandlega eftir eftirfa-
randi leiðbeiningum:
VARÚÐ!
• Hlaða rafhlöðuna einungis undir eftirliti.
• Ekki hlaða rafhlöðuna á meðan þú notar HANDBIKE BATEC HIBRID,
vegna hættu á að þú fáir raflost og slasist.
• Ekki hlaða rafhlöðuna að nóttu til meðan þú sefur.
• Hlaða rafhlöðuna langt frá öllu sem er eldfimt.
• Aldrei að nota afhleðslutengið til að hlaða rafhlöðuna og öfugt, aldrei
að nota hleðslutengið til að hlaða hana.
• Nota einungis hleðslutæki frá BATEC MOBILITY sem var afhent með
HANDBIKE BATEC HIBRID hjólinu þínu, til að hlaða rafhlöðuna.
• Aldrei að skila rafhlöðuna eftir eða hlaða hana nálægt uppsprettu hita.
• Aldrei að hlaða rafhlöðuna við hitastig undir 0 ºC.
• Geyma rafhlöðuna alltaf hlaðna.
• Ekki er leyfilegt að eiga við innihald rafhlöðunnar vegna hættu á
sprengingu og/eða eldi.
4.8.3. FREKARI UPPLÝSINGAR UM RAFHLÖÐUNA
Notkun rafhlöðunnar við lágt hitastig
Litíumjónarafhlöður missa getu, bæði hvað varðar kraft og endingartí-
ma, við lágt hitastig (undir 0 ºC). Ekki er um að ræða hættuástand, einun-
– 30 –
gis óþægindi, og því mælum við með því að geyma rafhlöðuna inni við
þessar aðstæður. Aldrei skal hlaða rafhlöðuna við hitastig undir 0 ºC.
Notkun rafhlöðunnar í raka
Ytra byrði BATEC MOBILITY rafhlöðunnar veitir rafhlöðunni og vírunum
inni í henni góða vörn gegn raka og rigningu. Þessi vörn nægir til að
þola þessar aðstæður öðru hvoru, en langvarandi og stöðug útsetning
fyrir miklum raka og rigningu getur valdið því að rafhlaðan hætti að
virka rétt. Því mælum við með því að forðast þessar aðstæður og draga
úr þeim tíma sem BATEC er í rigningu eða snjó, eins og hægt er.
Endingartími rafhlöðunnar
Rafhlaðan endist í allt frá 200 til 500 hleðslur og í 1 til 3 ár, háð ýmsum
þáttum svo sem hitastigi, hve reglulega hún er notuð og öðru (svo
sem þyngd notandans, aksturslagi, umhverfinu sem ekið er í og svo
framvegis).
Til að hámarka endingartíma rafhlöðunnar mælum við með að:
ÁRÍÐANDI!
• Aka varlega og á hóflegum hraða.
• Forðast að rafhlaðan sé við hátt hitastig.
• Forðast að rafhlaðan sé við lágt hitastig (undir 0 ºC).
• Forðast að rafhlaðan sé ónotuð í langan tíma í senn.
Líftíma rafhlöðunnar lýkur ekki allt í einu, heldur smá saman dregur
úr endingartíma hennar. Ef rafhlaðan þín hættir skyndilega að virka
er það oftast af tæknilegum ástæðum en ekki vegna þess að líftíma
hennar sé lokið.
– 31 –

Publicidad

loading

Productos relacionados para BATEC HIBRID 2

Este manual también es adecuado para:

Hibrid 2 tetraQuad hibrid 2