Loftþrýstingur í dekkjum mældur:
Fullvissaðu þig um að loftþrýstingur dekkjanna sé sá sem mælt er með
fyrir hverja gerð og að yfirborð sé ekki óslétt.
Þrif á HANDBIKE BATEC HIBRID:
Þrífðu undirvagninn með heitu vatni og sápu, hreinsiefnum fyrir
bíla eða öðru mjúku hreinsiefni. Þurrkaðu allt vatn af. Ekki þrífa með
háþrýstislöngu.
Að sótthreinsa HANDBIKE BATEC HIBRID
Fylgdu eftirfarandi skrefum til að sótthreinsa HANDBIKE BATEC HIBRID:
– Notaðu vatnsalkóhólískt hreinsiefni og klút.
– Bleyttu klútinn vel með hreinsiefni.
– Nuddaðu klútnum yfir alla fleti sem komast í snertingu við notan-
dann: stýri, hnappa, skjáborð og aftengingarstöng.
– Látið þorna.
ÁRÍÐANDI!
Sandur og sjór getur skemmt tiltekna hluta HANDBIKE BATEC HIBRID
við langvarandi snertingu. Þrífðu það af eftir notkun.
Þrif á fram- og afturdekkjum.
Fullvissaðu þig um að bæði fram- og afturdekk geti snúist og fjarlægðu
öll óhreinindi.
Yfirferð á bremsum:
Fullvissaðu þig um að þegar bremsurnar eru virkjaðar þá þrýstist þær
báðar að disknum þannig að full hemlun náist.
– 40 –
Gakktu úr skugga um að bremsukylfur og -diskur séu rétt fest við sín
tengi.
Til að stilla bremsuklossana skaltu alltaf stilla innri klossann fyrst og
svo þann ytri.
Smurning á köplum og keðjum:
Settu einn dropa af smurningu og úðaðu létt með teflonspreyi á kapla-
na sem tengjast stöngum og keðjum, eftir að hafa þrifið gamla smur-
ningu af. Þegar búið er að smyrja skal þrífa umframsmurningu af.
Smurning á drifi og kúplingu
Settu einn dropa af smurningu og úðaðu létt með teflonspreyi á kapla-
na sem tengjast stöngum og keðjum, eftir að hafa þrifið gamla smur-
ningu af. Þegar búið er að smyrja skal þrífa umframsmurningu af.
Yfirferð viðurkennds dreifiaðila á HANDBIKE BATEC HIBRID:
Fyrirbyggjandi viðhald og viðgerðir á HANDBIKE BATEC HIBRID hjólinu
þínu skal framkvæma hjá fyrirtæki sem viðurkennt er af BATEC MOBILITY.
Skipt um slöngu og dekk:
Áður en ný slanga er sett skaltu skoða yfirborð dekksins vel og inn-
rabyrgði líka ef um aðstoðahlut er að ræða þar og, ef á þarf að halda,
þrífa það vandlega. Fullvissaðu þig um að teygjan á gjörðinni sé í lagi,
sérstaklega við opið fyrir ventilinn. Einungis með góðri og rétt staðsettir
teygju á gjörðinni fæst langtíma vörn gegn skemmdum á slöngunni
vegna þess að hún færist úr stað eða fari á hvassa brún.
Áður en pumpað er í slönguna: Athugaðu öll samskeyti á báðum hliðum
til að fullvissa þig um að slangan hafi ekki klemmst milli dekkst og gjarðar.
Togaðu varlega í ventilinn þannig að hann falli sem best á sinn stað.
– 41 –