Hallde VCM-41 Instrucciones De Uso página 25

Ocultar thumbs Ver también para VCM-41:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 15
NOTKUNARLEIÐ -
BEININGAR
HALLDE
VCM - 41/42
( IS )
VARÚÐ:
Aðeins löggiltum fagmönnum er heimilt að
tengja VCM-42.
Varist að skera ykkur á beittum hnífum og
lausum vélarhlutum.
Lyftið alltaf vélinni upp á báðum hand-
föngum á hliðum vélarhússins en aldrei á
öryggisarminum.
Setjið aldrei hendurnar eða fingurna ofan í
skálina eða matarapípuna á lokinu.
Slökkvið alltaf á vélinni með því að snúa
takkanum í stöðu „O" og taka hana úr
sambandi eða slökkva á straumrofanum
áður en vélin er þrifin.
Aðeins löggiltum fagmönnum er heimilt að
gera við vélina og opna vélarhúsið.
Þetta tæki er ekki ætlað til notkunar af
börnum eða einstaklingum með skerta
líkamlega, skyn- eða andlega getu eða
skort á reynslu á tækjum sem þessu, nema
viðkomandi einstaklingur hafi hlotið full-
nægjandi leiðsögn eða tilsögn um notkun
tækisins.
UMBÚÐIR FJARLÆGÐAR
Gætið þess að allir hlutar fylgi vélinni, að
vélin sé í lagi og að ekkert hafi skemmst
í flutningi. Athugasemdir verða að hafa
borist seljanda innan átta daga.
UPPSETNING
Fjarlægið hnífinn úr skálinni fyrir uppsetningu.
Tengið vélina við rafmagn í samræmi við
upplýsingarnar á kenniplötunni aftan á vélinni.
Gangið úr skugga um að öxullinn snúist
rangsælis.
Gætið þess að öxullinn hætti að snúast innan 4
sekúndna eftir að öryggisarminum hefur verið
snúið frá miðju loksins.
Gangið úr skugga um að vélin fari ekki í gang
þegar skálin og lokið hafa verið fjarlægð en
öryggisarmurinn er yfir öxlinum í miðri vélinni.
Ef vélin virkar ekki rétt ber að kalla til löggiltan
fagmann til að laga gallann áður en vélin er
tekin aftur í notkun.
KANNIÐ ÁVALLT FYRIR
NOTKUN
Gætið þess að öxullinn hætti að snúast innan
4 sekúndna eftir að öryggisarminum hefur
HALLDE • User Instructions
verið snúið frá miðju loksins. Prófið þetta á
hámarkshraða.
Gangið úr skugga um að vélin fari ekki í gang
þegar skálin, hnífurinn og lokið hafa verið
fjarlægð og öryggisarmurinn er yfir öxlinum í
miðri vélinni.
Takið vélina úr sambandi eða slökkvið á
straumrofa og gangið síðan úr skugga um að
rafmagnssnúran sé heil og ósprungin.
Ef rafmagnssnúran er ekki heil eða sprungur
eru í henni eða einhverjum af fyrrnefndum
öryggisþáttum er ábótavant ber að kalla til
löggiltan rafvirkja til að laga gallann áður en
vélin er tekin aftur í notkun.
Gangið úr skugga um að allar skrúfur og boltar
séu kirfilega fastir.
Gangið úr skugga um að hnífarnir sé heilir
og bíti vel.
VINNSLUGERÐIR
Sker, malar og blandar saman kjöthakk,
kryddsmjör, salatsósu, eftirrétti, mauk, kæfu
o.s.frv. Vinnur kjöt, fisk, ávexti, grænmeti,
lauk, steinselju, hnetur, parmesanost, sveppi,
súkkulaði o.s.frv.
NOTENDUR
Veitingastaðir, verslunareldhús, mötuneyti,
bakarí, elliheimili, skólar, skyndibitastaðir,
veisluþjónustur, dagheimili, salatbarir, pítsus-
taðir, skip, iðnaðareldhús o.s.frv.
VINNSLUGETA
Vinnslutíminn og það magn og bitastærð sem
unnt er að vinna með í einu er mismunandi
eftir þéttleika hráefnisins og þeim árangri sem
stefnt er að.
Jafn og góður árangur fæst með því að hluta
hráefni eins og kjöt og fisk fyrst í nokkurn
veginn jafnstóra bita, ekki stærri en 4x4X4 sm.
Hámarksmagn hráefnis sem vélin getur unnið
í einu er sýnt á listanum fyrir neðan.
• Kjöt: 1,3 kíló
• Fiskur: 1,3 kíló
• Kryddsmjör: 1,3 kíló
• Steinselja: 1 lítri
SKAFAN
Hafið sköfuna alltaf á þegar vélin er notuð þar
sem sköfublöðin fjögur hægja á snúningi þess
sem er í skálinni og beina því inn að miðju/
skurðarhluta hennar.
Með því að færa sköfuhandfangið fram og aftur
er auðveldlega hægt að skafa hliðar skálarinnar
og láta matinn færast inn í skurðarhluta hennar
meðan vélin er í gangi.
SAMSETNING
Þegar vélin er sett saman er byrjað á að færa
öryggisarminn eins langt aftur og hægt er.
Setjið skálina ofan á vélina þannig að stýripinni
skálarinnar falli inn í rauf efst á vélinni.
Setjið hnífinn á öxulinn og þrýstið honum alla
leið niður.
Setjið sköfuna í skálina þannig að lok hennar
vísi á „klukkan sex".
Setjið lokið á skálina þannig að örin á brún
loksins bendi á sköfuhandfangið, og þrýstið
lokinu niður svo skafan og lokið festist saman.
Lyftið öryggisarminum um leið og honum er
snúið að miðju loksins.
LOSUN
Byrjið á að lyfta öryggisarminum örlítið og snúa
honum í átt að aftari hluta vélarinnar þar til hann
er farinn af skálinni. Fjarlægið svo skálina.
Skiljið ávallt hnífinn eftir þegar skálin er fjar-
lægð, til að hindra að innihald skálarinnar leki
út í gegnum rörið í miðri skálinni.
NOTKUN HRAÐASTILLIS
Þegar stýriarmurinn er í stöðu „O" er slökkt
á vélinni.
Í stöðunni „I" vinnur vélin stöðugt á litlum hraða
og í stöðunni „II" (VCM-42) stöðugt á miklum
hraða.
Í stöðunni „PULSE" vinnur vélin meðan
arminum er haldið í þeirri stöðu. Snögga
hraðastillingin (PULSE) er notuð fyrir stutta
vinnslu þar sem nákvæmni er þörf.
ÞRIF
Lesið allar leiðbeiningar áður vélin er þrifin.
FYRIR ÞRIF Slökkvið ávallt á vélinni og takið
hana úr sambandi eða, ef það er engin kló,
slökkvið á straumrofanum. Fjarlægið alla hluta
sem má fjarlægja og á að þrífa.
HLUTAR SEM MÁ FJARLÆGJA Alla hluta sem
má fjarlægja má setja í uppþvottavél. Notið
alltaf uppþvottalög þegar hlutar eru þvegnir
með höndunum. Gættið ykkar á beittum hnífum
í hnífhöfðinu!
VÉL: Strjúkið af vélinni með rökum klút og
þurrkið hana svo.
VIÐVÖRUN:
• Hellið hvorki né úðið vatni á vélina.
• Notið ekki natríumhýpóklórít (klór) eða önnur
efni sem innihalda það.
• Notið aldrei beitt verkfæri við þrif eða önnur
verkfæri sem ekki eru ætluð fyrir þrif.
• Notið ekki fægiefni.
FORÐIST: Notið ekki þvottasvampa með
ræstipúðum (t.d. Scotch-Brite™) nema það sé
algjörlega nauðsynlegt. Það ýfir yfirborðsfleti
svo þeir hrinda síður vatni frá sér.
RÁÐ FYRIR UMHIRÐU:
• Þrífið vélina strax eftir notkun.
• Þurrkið vélina strax eftir þrif.
25

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

Vcm-42

Tabla de contenido