Hallde VCM-41 Instrucciones De Uso página 25

Ocultar thumbs Ver también para VCM-41:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 13
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
VCM-41/61/62
(IS)
AÐVÖRUN!
Lyftið aldrei vélinni á
öryggisarminum.
Aðeins löggiltum fagmönnum er
heimilt að tengja VCM-62.
Varist að skera ykkur á beittum
hnífum og lausum vélarhlutum.
Stingið aldrei fingrunum ofan í
skálina (I) nema við
hreingerningu.
Aðeins löggiltum fagmönnum er
heimilt að annast viðgerðir á
vélinni og opna vélarhúsið.
Slökkvið fyrst á vélinni og takið
hana úr sambandi, eða slökkvið
á straumrofa áður en hún er
hreinsuð.
ÚTPÖKKUN
Gangið úr skugga um að jafnvel smæstu
hlutir fylgi vélinni, að hún sé í lagi og ekkert
hafi skemmst í flutningi. Kvartanir verða að
berast umboðsmanni vélarinnar innan átta
daga.
TENGING
Fjarlægið hnífinn (G/H) úr skálinni (I) fyrir
uppsetningu.
Tengið vélina við rafstraum með réttri
uppgefinni spennu.
Gangið úr skugga um að öxullinn (O) snúist
rangsælis.
Gangið úr skugga um að öxullinn hætti að
snúast innan 4 sekúndna frá því að
öryggisarmurinn (K) hefur verið færður frá
miðju loksins (A).
Gangið úr skugga um að vélin geti ekki
farið í gang ef skálin og lokið eru fjarlægð
og öryggisarmurinn færður fram yfir öxulinn í
miðju vélarinnar.
Ef misbrestur er á þessu, kallið þá til
viðgerðarmann áður en vélin er tekin í
notkun.
SAMSETNING
Færið öryggisarminn aftur eins langt og unnt
er.
Setjið skálina (I) ofan á vélina þannig að
stýrispinni skálarinnar (J) falli inn í gróp á
yfirborði vélarinnar (P) og snúið skálinni
rangsælis.
Rennið hnífnum (H) eins langt upp á öxulinn
(O) og unnt er.
Komið sköfuhringnum (C) fyrir í skálinni
þannig að lok hans (F) vísi "klukkan sex".
Leggið lokið (A) ofan á skálina þannig að
örin á brún loksins vísi á handfang
sköfuhringsins (D) og þrýstið lokinu niður
þannig að sköfuhringurinn og lokið sitji þétt
saman.
Lyftið öryggisarminum og færið hann um leið
inn að miðju loksins.
LOSUN
Lyftið öryggisarminum (K) ögn, færið hann
síðan aftur og út fyrir skálina (I) og fjarlægið
síðan skálina.
Látið alltaf hnífinn (G/H) sitja eftir í skálinni
þegar hún er losuð til að innihaldið geti ekki
runnið út gegnum pípuna í skálinni miðri.
UPPSETNING
FJÖGURRALÍTRASKÁLAR Á
VCM-61 OG 62
Leggið festihringinn (L) ofan á vélina þannig
að stýrispinni hringsins (M) falli inn í gróp á
vélinni (P).
Leggið fjögurra lítra skálina á vélina þannig
að stýrispinni skálarinnar (J) falli inn í gróp á
festihringnum (N).
VÖRUMAGN , STÆRÐ
OG VINNSLUTÍMI
Það magn og bitastærð sem unnt er að
vinna í einu og vinnslutíminn er mismunandi
eftir þéttleika hráefnisins og þeim árangri
sem stefnt er að.
Jafn og góður árangur fæst með því að
hluta fast hráefni eins og kjöt, ost o.s.frv. fyrst
í nokkurn veginn jafn stóra bita, ekki stærri
en u.þ.b. 4 cm 3.
Í eftirfarandi lista er gefið upp
hámarksmagn hráefnis sem vinna má í einu
ásamt lauslega áætluðum vinnslutíma.
VCM-4: Kjöt: 1.3 kg/1 mín. Fiskur: 1.3 kg/
1 mín. Kryddsmjör: 1.3 kg/1mín. Deig 1.3
kg/2 mín. Majones: 1.65 lítri/1 mín.
Steinselja: 1 lítri/1 mín.
VCM-61/62: Kjöt: 2kg/1 mín. Fiskur: 2 kg/
1 mín. Kryddsmjör: 2 kg/1 mín. Deig: 2 kg/
2 mín. Majonnes: 2.65 lítrar/1 mín.
Steinselja: 1.5 lítri/1 mín.
STILLIROFI
Þegar stillirofinn (Q) er í stöðu "0" er slökkt
á vélinni.
Í stöðu "I" gengur vélin samfleytt og í stöðu
"II" (VCM-62) gengur vélin samfleytt á
miklum hraða.
Í stöðu "PULS" gengur vélin þangað til
rofanum er sleppt. PULS-stillingin er notuð í
stuttri vinnslu þar sem stefnt er að nákvæmum
árangri.
SKÖFUHRINGUR
Sköfuhringurinn (C) er hjálpartæki til að
beina t.d. kjöthakki sem hefur fest á hliðar
skálarinnar aftur í átt að hnífnum á meðan
vélin vinnur.
Snúið sköfuhringnum þegar þið viljið skafa
af hliðum skálarinnar eða opna/loka
mötunaropinu (B).
HREINSUN
Slökkvið fyrst á vélinni og takið hana úr
sambandi, eða slökkvið á straumrofa.
Hreinsið ávallt vélina þegar eftir notkun.
Fjarlægið lausa hluta úr vélinni og þvoið þá
vel og þurrkið.
Þurrkið af vélarhúsinu með votri grisju.
Vélarhúsið má aldrei hreinsa með
uppþvottaefni með háu sýrustigi (pH - oft
notuðu í uppþvottavélar).
Skiljið aldrei við hnífana (G/H) blauta eða
á ryðfríum bekk þegar þeir eru ekki í notkun.
Notið aldrei oddhvöss verkfæri eða
háþrýstisprautu.
Geymið skálina (I) og hnífinn (H) á vélinni
þegar þau eru ekki í notkun.
GANGIÐ ÚR SKUGGA
UM VIKULEGA
Að öxullinn (O) hætti að snúast innan 4
sekúndna eftir að öryggisarmurinn (K) hefur
verið færður frá miðju loksins (A).
Að ekki sé unnt að gangsetja vélina ef skálin
(I) og lokið eru fjarlægð og öryggisarmurinn
færður fram yfir öxulinn í miðju vélarinnar.
Takið vélina úr sambandi eða slökkvið á
straumrofa og gangið síðan úr skugga um
að raflínan sé heil og engar sprungur í henni.
Ef raflínan er ekki heil eða sprungur eru í
henni eða ef einhver af fyrrnefndum

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

Vcm-61Vcm-62

Tabla de contenido