Ef blossar koma upp á meðan tækið er í notkun. Snúðu stjórnhnappinum,
gaskútsventlinum og rofa þrýstijafnarans á „OFF". Bíddu í 5 mínútur áður en þú reynir
aftur kveikja upp í tækinu. Ef vandinn er enn til staðar eftir að aftur hefur verið kveikt
upp í tækinu skaltu hafa samband við söluaðila gaskútsins eða pítsuofnsins, eða
viðurkenndan tæknimann sem gefur veitt aðstoð eða gert við tækið. Ekki reyna að
leysa vandamál upp á eigin spýtur þar sem það gæti valdið alvarlegu líkamstjóni og/eða
eignatjóni.
Hreinsaðu umframfitu af tækinu áður en það er sett í geymslu með því að nota rakan klút
með mildu hreinsiefni.
Geymdu tækið á hreinum og þurrum stað.
Ekki geyma gaskútinn innandyra. Geymist á vel loftræstum stað fjarri sólarljósi.
TENGING GASKÚTS VIÐ TÆKIÐ
Tengdu slöngu með áföstum þrýstijafnara við gaskútinn. Aðeins má nota CE-samþykktan
þrýstijafnara og slöngu með ¼" tengi.
Athugaðu leka með sápuvatni áður en pítsuofninn er notaður.
TIL AÐ ATHUGA LEKA
Útbúðu lausn til að athuga leka með 1 hluta af uppþvottalegi og 3 hlutum af vatni.
Gakktu úr skugga um að stjórnhnappurinn sé á „OFF".
Tengdu gaskútinn og opnaðu þrýstijafnarann. Gættu að því að tengingar séu tryggar og
skrúfaðu svo frá gasi.
Burstaðu sápulausnina á slönguna og öll samskeyti. Ef sápur koma fram er leki til staðar
sem verður að lagfæra fyrir notkun.
Prófaðu aftur eftir að bilunin hefur verið lagfærð. Skrúfaðu fyrir gaskútinn eftir prófun.
Ef ekki tekst að lagfæra greindan leka skal skipta um þrýstijafnara og slöngu.
Ef gas lekur skal skrúfa fyrir gaskútinn.
ÞRÝSTIJAFNARI OG SLANGA
Aðeins skal nota þrýstijafnara og slöngu sem eru samþykkt til notkunar með fljótandi
jarðolíugasi við ofangreindan þrýsting (sjá tæknilegar upplýsingar).Áætlaður
endingartími þrýstijafnara er 10 ár.Ráðlagt er að skipta um þrýstijafnara innan 10 ára frá
framleiðslu.
Ekki er öruggt að nota rangan þrýstijafnara eða slöngu; gakktu alltaf úr skugga um að þú
sért að nota rétta hluti áður en þú notar tækið.
Slangan sem er notuð verður að uppfylla viðeigandi staðla í notkunarlandi.Slangan má
ekki vera lengri en 1,5 metrar.Skipta verður um slitnar eða skemmdar slöngur.Gakktu úr
skugga um að slangan sé ekki með hindrunum, bogin eða í snertingu við nokkra hluta
pítsuofnsins annars staðar en við tenginguna.
Slangan verður að uppfylla staðalinn EN16436.
Ekki má snúa upp á slönguna eða beygja hana þegar hún er tengd við gaskútinn.
Skipta verður um leiðslu úr sveigjanlegum málmi eða gúmmíi, sem notuð er til að tengja
88