Atos PROVOX Vega Instrucciones De Uso página 100

Ocultar thumbs Ver también para PROVOX Vega:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 18
2.
Ísetning í TE-opið
Haltu Provox Insertion System með hleðsluslöngunni. Stingdu endanum
á hleðsluslöngunni inn í opið. Haltu áfram með varúð ef þú finnur fyrir viðnámi.
Ef þú finnur fyrir viðnámi, getur útvíkkun og/eða smurning auðveldað ísetninguna.
3.
Ísetning talventilsins
Ýttu á ísetningarpinnann með annarri hendinni þar til örvarnar á yfirborði nærlæga
gripsins flútta við hleðsluslönguna (mynd 9). Nú er vélindakragi talventilsins
ósamanbrotinn í vélindanu.
4.
Slepptu talventlinum
Haltu hleðsluslöngunni með annarri hendinni og ísetningarpinnanum með hinni
hendinni. Dragðu bæði hleðsluslönguna og ísetningarpinnann aftur á bak þar til
þú finnur að vélindakraginn hefur náð framhluta vélindaveggsins. Slepptu síðan
ísetningarpinnanum og dragðu hleðsluslönguna beint út úr opinu. Þetta losar
barkakragann.
Athugið: Ef brotin á barkakraganum losna í vélindanu eða opinu (yfirskot af slysni),
skaltu grípa í barkakragann með ótenntri æðatöng og draga/snúa talventlinum
á sinn stað.
5.
Ferlinu lokið
Eftir ísetningu þarf að ljúka ferlinu eins og lýst er í kafla 2.5 hér fyrir neðan.
2.3.3 Aðferð 3: Ísetning með yfirskoti
Yfirskot á Provox Vega talventli er stundum framkvæmt til að tryggja fullkomna
staðsetningu vélindakragans í erfiðum TE-opum.
1.
Samanbrotstækið fjarlægt (valkvætt)
Eftir að ventlinum hefur verið ýtt inn í hleðsluslönguna skaltu fjarlægja
samanbrotstækið með því að opna og aftengja það frá hleðsluslöngunni (mynd 8).
2.
Ísetning í TE-opið
Haltu Provox Insertion System með hleðsluslöngunni. Stingdu endanum
á hleðsluslöngunni inn í opið. Haltu áfram með varúð ef þú finnur fyrir viðnámi.
Ef þú finnur fyrir viðnámi, getur útvíkkun og/eða smurning auðveldað ísetninguna.
3.
Ísetning talventilsins
Haltu hleðsluslöngunni stöðugri með annarri hendinni og ýttu á ísetningarpinnann
með hinni hendinni þar til hann er kominn framhjá yfirborði nærlæga gripsins
(mynd 10). Nú er talventillinn kominn inn í vélindað (mynd 11).
Ef ísetning með yfirskoti er framkvæmd með samsettu samanbrotstæki skaltu ýta
ísetningarpinnanum framhjá yfirborði fjarlæga gripsins. Núna er talventillinn
kominn inn í vélindað (mynd 12).
4.
Slepptu talventlinum
Dragðu hleðsluslönguna beint út úr opinu. Ventillinn verður eftir í vélindanu,
ennþá fastur við ísetningarpinnann. Gríptu í barkakragann með ótenntri æðatöng
og dragðu/snúðu talventlinum á sinn stað.
5.
Ferlinu lokið
Eftir ísetningu þarf að ljúka ferlinu eins og lýst er í kafla 2.5 hér fyrir neðan.
2.3.4 Aðferð 4: Ísetning hylkis
Nota má samanbrotstækið í Provox Insertion System til að brjóta saman vélindakragann
í hefðbundnum Provox Vega talventli í Provox Capsule hylki*. Í þessari aðferð er
hleðsluslangan ekki notuð.
Athugið: Þessi aðferð lýsir eingöngu ferlinu við að hlaða Provox Vega inn í Provox Capsule
hylkið. Nánari upplýsingar um ísetningu í TE-opið er að finna í notkunarleiðbeiningum
sem fylgja Provox Capsule hylkjunum.
1.
Ísetning ventils í Provox Capsule hylki
Þrýstu samanbrotstækinu saman með tveimur fingrum og settu hylkið í op
samanbrotstækisins (mynd 13). Haltu samanbrotstækinu saman á meðan þú heldur
hylkinu niðri með vísifingri (mynd 14). Ýttu ísetningarpinnanum þétt fram á við,
þetta hleður vélindakraga talventilsins inn í hylkið.
2.
Athugaðu rétta hleðslu
Talventillinn er nú hlaðinn inn í Provox Capsule hylkið og hægt er að taka
samanbrotstækið frá ísetningarpinnanum. Staðfestu að vélindakraginn sé inni
í hylkinu (mynd 15). Ef talventillinn er ekki rétt brotinn saman þarf að endurtaka
hleðsluferlið með nýju Provox Capsule hylki.
Fjarlægðu talventilinn og undirbúðu TE-opið (sjá kafla 2.2 atriði 6 og 7) og komdu
3.
talventlinum fyrir samkvæmt notkunarleiðbeiningunum fyrir Provox Capsule
hylkið.
* Ekki fáanlegt í öllum löndum.
2.4 Samsetning og endurhleðsla á Provox Insertion
System
Ef fyrsta tilraunin til að setja Provox Vega inn í TE-opið mistókst er mögulegt að
endurhlaða talventilinn inn í Provox Insertion System.
Staðsetning talventils
1.
Festu talventilinn þannig að barkahliðin vísi niður ofan á ísetningarpinnanum.
2.
Festu öryggisólina með því að stinga henni í gegnum festiraufina frá hvorri hlið.
3.
Tryggðu að talventillinn sé rétt staðsettur á ísetningarpinnanum, vel festur og að
endi pinnans sé staðsettur í bláa hringnum á talventlinum (mynd 3).
Samanbrotstækið tengt
4.
Stingdu ísetningarpinnanum í gegnum opið á samanbrotstækinu þar til hann
smellur á sinn stað. Togaðu í pinnann þangað til pinninn grípur í samanbrotstækið
(mynd 16). Provox Insertion System er nú tilbúið til undirbúnings. Haltu áfram
undirbúningnum eins og lýst er í kafla 2.2 hér fyrir ofan.
VARÚÐ: Ekki endurhlaða oftar en tvisvar. Ef Provox Vega talventilinn sýnir merki
um skemmdir skaltu ekki nota talventilinn.
100

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido