Stilla verður skolunartímann innan
30 mínútna eftir að straumurinn er
settur á.
5
Haldið hvítu blaði við neðri brún
þvagskálarinnar framan við innrauða
skynjarann í að minnsta kosti 2
sekúndur.
6
Fjarlægið hvíta blaðið þegar 2 stutt
hljóðmerki hafa heyrst.
7
Setjið hendi framan við innrauða
skynjarann innan 10 sekúndna og
takið hana aftur frá þegar tilgreindur
fjöldi hljóðmerkja hefur heyrst. Skolað
er svo lengi sem höndin er fyrir framan
skynjarann.
Eitt hljóðmerki samsvarar u.þ.b. 0,2 l
skolunarmagni.
Til dæmis: 12 hljóðmerki = u.þ.b. 2,4 l
8
Stillingin er staðfest með 2 stuttum
hljóðmerkjum.
Niðurstaða
Skolunartíminn hefur verið stilltur og
þvagskálin er aftur tilbúin til notkunar.
Skipt um rafhlöður
Á Geberit þvagskálum sem ganga fyrir
rafhlöðum þarf að skipta um rafhlöðurnar á
u.þ.b. 2 ára fresti. Ef hljóðmerki heyrist þegar
farið er inn á skynjunarsviðið gefur það til
kynna að rafhlaðan sé við það að tæmast, sjá
„Gert við bilanir".
Skilyrði
Tvær vararafhlöður (Alkaline 1,5 V AA) eru til
taks.
Takið þvagskálastýringuna af.
1
Opnið hlífina og takið
þvagskálastýringuna úr.
2
Takið snúru rafhlöðuhólfsins úr
sambandi.
B1243-001 © 10-2017
966.934.00.0 (01)
Skiptið um rafhlöðurnar.
3
Takið rafhlöðuhólfið úr og skiptið um
rafhlöðurnar.
Setjið þvagskálastýringuna á.
4
Setjið snúru rafhlöðuhólfsins í
samband.
5
Setjið þvagskálastýringuna í og lokið
hlífinni.
Niðurstaða
Þvagskálin er aftur tilbúin til notkunar.
Hlaðið hleðslurafhlöðuna fyrir
notkun án ytri aflgjafa
Ef Geberit þvagskálar án ytri aflgjafa eru
notaðar sjaldan hleðst hleðslurafhlaðan of
lítið. Ef hljóðmerki heyrist þegar farið er inn á
skynjunarsviðið gefur það til kynna að
hleðslurafhlaðan sé að tæmast, sjá „Gert við
bilanir".
Takið þvagskálastýringuna af.
1
Opnið hlífina og takið
þvagskálastýringuna úr.
2
Takið snúru rafhlöðuhólfsins úr
sambandi.
3
Mælið og hlaðið hleðslurafhlöðuna
með hleðslutækinu með vörunúmeri
116.452.00.1, sjá notendahandbók
965.861.00.0.
IS
109