Descargar Imprimir esta página

Philips RESPIRONICS Therapy Mask 3100 NC Instrucciones De Uso página 78

Publicidad

Gríman stillt
1. Notið sleðana til að stilla efri og neðri ólar höfuðbúnaðarins. Til að stilla meðan gríman er á
andlitinu skal taka í annan sleðann með annarri hendinni. Takið í tauefni á ól höfuðbúnaðarins
með hinni hendinni. Dragið sleðann annaðhvort til hægri eða vinstri til að herða eða slaka. d
Athugið: Algengustu mistökin eru að herða um of. Ef gríman virðist þröng skal slaka á ólum
höfuðbúnaðarins þannig að þær passi. Gríman á að sitja laust og þægilega á andlitinu. e
Notkun grímunnar
Athugið: Látið grímuna sitja rétt með því að draga hana frá andlitinu og setja hana varlega aftur
á sinn stað.
1. Tengið mjúku slönguna (sem fylgir CPAP eða tveggja þrepa tækinu) við snúningsliðinn.
2. Kveikið á meðferðartækinu. Leggist út af. Andið eðlilega.
3. Prófið mismunandi svefnstellingar. Gott er að hreyfa sig þar til það er þægilegt. Ef mikið loft
lekur út þarf að fínstilla. Smávegis loftleki er eðlilegur.
5 Umhirða grímunnar
Leiðbeiningar um hreinsun
Varnaðarorð:
• Ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt getur það haft áhrif á virkni tækisins.
• Setjið efnishluta höfuðbúnaðarins ekki í þurrkara.
• Ekki má nota bleikiefni, hreinsilausnir sem innihalda klór eða hreinsilausnir sem innihalda
mýkingarefni eða rakakrem.
• Ekki má nota alkóhól eða hreinsilausnir sem innihalda alkóhól á hluta grímunnar sem eru
ekki úr tauefni.
Hlutana sem ekki eru úr tauefni skal handþvo daglega. Hlutana sem eru úr tauefni skal handþvo
vikulega eða eftir þörfum.
1. Takið grímuna í sundur (sjá kaflann Taka í sundur).
2. Skoðið alla grímuna í leit að skemmdum eða sliti (sprungur, yfirborðsnetsprungur, slit,
skemmdir út frá geli o.s.frv.). Fargið og endurnýið hluti eins og þarf.
3. Setjið hluta grímunnar á kaf og handþvoið í volgu vatni (27-32°C) með fljótandi uppþvottaefni.
Athugið: Gætið þess að ekkert loft sé inni í grímuhlutunum meðan þeir eru á kafi.
4. Skolið vandlega.
5. Leggið tauefnishlutana flata til þerris eða hengið þá upp á snúru. Gangið úr skugga um að öll
gríman sé þurr áður en hún er notuð.
d
e
77

Publicidad

loading

Este manual también es adecuado para:

Respironics therapy mask 3100 sp