Descargar Imprimir esta página

Hallde VCB-61 Instrucciones De Uso página 26

Ocultar thumbs Ver también para VCB-61:

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 14
Notkunarleiðbeiningar
HÄLLDE VCB-61/62
(IS)
VARÚÐ!
Varið ykkur á beittum
hnífblöðunum (A6).
Stingið aldrei hendi eða fingrum
ofan í skálina (A7) eða í
mötunarrörið á lokinu (A3).
Gangið alltaf úr skugga um að
þéttingarhringurinn sé alltaf í
raufinni innan á lokinu (A4) þegar
tækið er í notkun, eins og sést á
mynd D.
Gangið úr skugga um að tappinn
(A2) sé alltaf áfastur við lokið og
stungið rétt í mötunarrörið eins
langt og hann kemst (A3), eins og
sést á mynd F1.
Notið alltaf handföngin (A10) á
hliðunum þegar vélinni er lyft,
aldrei öryggisarminn (A8).
Slökkvið alltaf á vélinni áður en
hún er þrifin með því að seta
valrofann (A1 1) í O-stöðu og taka
vélina úr sambandi eða slökkva á
straumrofanum.
Aðeins viðurkenndur fagmaður má
gera við vélina eða opna
vélarhúsið (A12).
Vélin tekin úr umbúðunum.
Berið saman við afgreiðsluseðil og kannið
hvort allir hlutar fylgdu með. Kannið að vélin
sé í lagi og að ekkert hafi skemmst í flutningi.
Kvartanir verða að hafa borist seljanda innan
8 daga ef eitthvað vantar upp á.
Uppsetning.
Setjið vélina í samband á heppilegum stað í
samræmi við merkingar á skiltinu aftan á
vélarhúsinu (A12).
Komið vélinni fyrir á sterkbyggðum
eldhúsbekk eða borði 650 - 900 mm á hæð.
Öryggisatriði athuguð fyrir notkun.
Takið lokið (A4) af, fjarlægið hnífa (A6) og
skál (A7) eins og lýst er í kaflanum "Vélin
tekin sundur". Gangið úr skugga um að vélin
fari ekki í gang þegar hraðastillingin (A1 1) er í
stöðunni I, II (VCB-62) eða P.
Setjið skálina, lokið og sköfuna á vélarhúsið
eins og lýst er í kaflanum " Vélin sett saman"
en án þess að koma hnífnum fyrir í skálinni.
Setið hraðastillinguna (A1 1) í I-stöðu (á við um
VCB-61) eða II (á við um VCB-62) og færið
öryggisarminn (A8) eins langt til hliðar og
hann kemst og kannið hvort öxullinn (A9)
hættir að snúast innan fjögurra sekúndna.
Ef misbrestur er á þessu verður að kalla á
viðgerðarmann áður en vélin er aftur tekin í
notkun.
Tegund vinnslu.
VCB-61/62 sker og hakkar kjöt, fisk, ávext,
grænmeti og hnetur, hrærir sósur, kryddsmjör,
majónes, súpur, salatsósur, jafning, eftirrétti
o.s.frv..
Vélin tekin sundur.
Færið öryggisarminn (A8) eins langt aftur og
hann kemst (mynd H1).
Takið lokið/sköfuna (A1-A5) af og snúið
sköfuhandfanginu (A1) þannig að það hylji
mötunarrörið (A3) (mynd H2).
Þrýstið sköfuhandfanginu (A1) og
sköfuhringnum (A5) saman (mynd H2) og
snúið um leið sköfuhandfanginu rangsælis
eins langt og það kemst (mynd H3) og takið
hlutana í sundur (mynd H4).
Fjarlægið hnífinn (A6) og skálina (A7).
Vélin sett saman.
Setjið skálina (A7) á vélarhúsið (A12) þannig
að annar stýripinninn á skálinni fari ofan í
grópina framan/ofan á vélarhúsinu (mynd B).
Rennið hnífnum (A6) eins langt upp á öxulinn
(A9) og hægt er (mynd C). Ath! Hnífurinn má
ekki vera á þegar öryggisatriði eru athuguð,
aðeins við vinnslu.
Komið þéttingarhringnum fyrir í raufinni innan
á lokinu (mynd D).
Setjið tappann rétt í mötunarrörið eins og sést
á mynd F1 þannig að hann standi ekki út úr
neðan á lokinu , eins og sést á mynd F2.
Haldið í miðju sköfuhringsins (AS) með vinstri
hendi samkvæmt mynd G1 og í mötunarrörið
á lokinu (A3) með hægri hendi og setjið lokið
á sköfuhringinn, eins og sést á mynd G2.
Haldið í sköfuhandfangið (A1) með hægri
hendi og þrýstið miðju þess niður að miðju
loksins eins langt og hægt er, eins og sést á
mynd G3.
Þrýstið sköfuhringnum og sköfuhandfanginu
saman um leið og sköfuhandfanginu er snúið
réttsælis eins langt og það kemst og hlutarnir
haldast saman, eins og sést á mynd G4.
Leggið lokið/sköfuna ofan á skálina þannig
að handfang loksins sé beint fyrir ofan
handfangið á skálinni, eins og sést á mynd
G5.
Snúið öryggisarminum (A8) þannig að hann
sé yfir miðju loksins, eins og sést á mynd G6.
Hafið sköfuna (A1/A5) alltaf
á við alla vinnslu.
Hafið sköfuna (A1/A5) alltaf á þegar vélin
er notuð þar sem sköfublöðin fjögur hægja á
snúningi þess sem er í skálinni og beina því
inn að miðju/skurðarhluta hennar.
Með því að færa sköfuhandfangið (A1) fram
og aftur er auðveldlega hægt að skafa lok
og hliðar skálarinnar og láta matinn færast
inn að miðjunni á meðan vélin er í gangi.
Magn, stærðir og vinnslutími.
Magn og bitastærðir sem hægt er að vinna í
einu sem og vinnslutími fer eftir því hvað verið
er að vinna og hvaða árangri maður vill ná.
Jafn og góður árangur næst best með því að
hluta fyrst fast hráefni svo sem kjöt, osta
o.s.frv. í nokkurn veginn jafn stóra bita sem
ekki eru stærri en um tveir sentímetrar á kant.
Hámarksmagn sem vélin getur unnið í einu: 2
kg kjöt, 2 kg fiskur, 2 kg kryddsmjör, 4,5 lítrar
súpa/sósa/salatsósa o.s.frv. og 1,5 lítrar
steinselja.
Valrofinn (A1 1).
Þegar valrofinn (A1 1) er í 0-stöðu er slökkt á
vélinni. Ef valrofinn er í I-stöðu gengur vélin
samfleytt og á lágum hraða og í II-stöðu
(aðeins VCB-62) samfleytt á háum hraða. Í P-
stöðu (púls) gengur vélin á lágum hraða
þangað til rofanum er sleppt.
Hvaða hraði er notaður fer eftir því hvað
verið er að vinna, gæðum þess og hvaða
árangri maður vill ná.
Venjulega á að byrja vinnslu með nokkrum
stuttum keyrslum í P-stöðu. Ef varan þarf lengri
vinnslu er valrofinn settur í I-stöðu og ef
árangurinn er ófullnægjandi er skipt yfir í II-
stöðu (aðeins VCB-62).
Hreinsun.
VARÚÐ: Varið ykkur á beittum hnífblöðunum
(A6).
VARÚÐ: Áður en byrjað er að hreinsa á að
slökkva á vélinni með því að snúa valrofanum
(A1 1) í O-stöðu og taka vélina úr sambandi
eða slökkva á straumrofanum.
Hreinsið ávallt vélina vandlega strax eftir
notkun.
Takið lokið (A4), sköfuna (A1/A5), hnífinn

Publicidad

loading

Este manual también es adecuado para:

Vcb-62