Fyrirhuguð notkun
Wallbox eM4 Twin býður upp á tvo hleðslustaði sem hægt er að nota samtímis og er því tilvalin lausn
þar sem setja á upp hóp hleðslustöðva á stöðum sem eru opnir almenningi, eins og á bílastæðum
fyrirtækja eða hótela. Hún hentar bæði til notkunar í almannarými og á heimilum. eM4 Twin er
fáanleg í „Controller"- eða „Extender"-útfærslu til að búa til hóp hleðslustöðva, en einnig er hægt
að setja hana upp fyrir sjálfstæða vinnslu. Wallbox eM4 Twin er einnig fáanleg í reev ready-útgáfu
með bakvinnslutengingu sem einfaldar umsjón með hleðslum og kostnaðarútreikning til muna.
Upplýsingar um uppsetningu, stillingar og notkun
Í þessu skjali er fjallað um helstu atriði sem tengjast notkun Wallbox eM4 Twin þegar faglærður
rafvirki hefur séð um að setja hana upp, stilla hana og taka hana í notkun. Ítarlegar upplýsingar um
uppsetningu og stillingu er að finna í ítarlegu uppsetningarhandbókinni sem hægt er að sækja á
stafrænu formi (PDF) á vefsíðunni www.ablmobility.de/en (sjá „Tæknilegar viðbótarupplýsingar"
á bls. 204).
Notendahandbók (þetta skjal)
Tæknilegar viðbótarupplýsingar
x Upplýsingablöð
x Uppsetningarhandbók
Öryggisupplýsingar
HÆTTA
Hætta vegna rafspennu
Sé ekki farið eftir öryggisupplýsingunum í þessari handbók eða þær virtar að vettugi, getur
það leitt til raflosts, eldsvoða, alvarlegs líkamstjóns og/eða dauða.
x Lesið allar öryggisupplýsingar vandlega.
x Fylgið ávallt öllum öryggisupplýsingum!
Fylgið eftirfarandi leiðbeiningum:
Almennar öryggisupplýsingar
x Lesið þessar leiðbeiningar vandlega.
x Farið eftir öllum ábendingum og fylgið öllum leiðbeiningum.
x Geyma skal þessar leiðbeiningar á öruggum stað sem alltaf er hægt að komast að: Allir sem
nota vöruna verða að geta nálgast efni leiðbeininganna, einkum öryggisleiðbeiningarnar.
x Ekki má líma neitt á vöruna eða hylja hana með öðrum hlutum eða efni.
194 |
Fyrirhuguð notkun
Notandi
Rafvirki