x Að auðkenningunni lokinni gefur
vegghleðslustöðin frá sér tvö stutt
hljóðmerki til viðbótar og opnar síðan
fyrir hleðslu.
x Ef auðkenning mistekst logar
stöðuvísirinn fyrir hleðslustaðinn í
appelsínugulum lit í stutta stund og
vegghleðslustöðin gefur frá sér þrjú
löng hljóðmerki.
x Að því loknu logar aftur blátt ljós sem
hreyfist: Haldið gildu RFID-korti upp
að stöðuvísinum.
ATHUGIÐ
Auðkenning með RFID-korti tókst ekki
Ef auðkenning með RFID-korti tekst ekki skal gera eitthvað af eftirfarandi:
x Vegghleðslustöðin notuð með bakvinnslu: Hafið samband við útgefanda RFID-
kortsins.
x Vegghleðslustöðin notuð án bakvinnslu: Gangið úr skugga um að RFID-kortið hafi
verið stillt inn í vegghleðslustöðina. Frekari upplýsingar um þetta er að finna í ítarlegu
uppsetningarhandbókinni.
VARÚÐ
Ekki er hægt að lesa RFID-kortið
Ef hindrun er fyrir loftnetinu í RFID-kortinu eða það er skemmt er ekki hægt að greina kortið.
x Takið RFID-kortið úr hulstrinu eða veskinu og skráið ykkur inn í RFID-lesaranum.
x Ekki gera neinar breytingar á RFID-kortinu: Alls ekki má gata kortið, brjóta upp á það, líma
eitthvað á það eða eiga við það með öðrum hætti.
x Gangið úr skugga um að RFID-kortið samræmist staðli sem vegghleðslustöðin styður.
Frekari upplýsingar um þetta er að finna í ítarlegu uppsetningarhandbókinni.
198 |
Hleðsla