SureSmile
VPro
®
NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR TANNLÆKNA
ÁBENDINGAR FYRIR NOTKUN
SureSmile VPro er ætlað til notkunar fyrir tannréttingasjúkling meðan á
tannréttingum stendur til að leiðrétta minniháttar hreyfingar framtanna.
SureSmile VPro munnstykkið er ætlað til notkunar með SureSmile VPro
titringsbúnaðinum.
HVAÐ ER Í PAKKANUM
Með SureSmile VPro er titringsbúnaðurinn, munnstykki og hleðslusnúra.
Munnstykkið og hleðslusnúran eru einnig seld stök.
FRÁBENDINGAR
• Ekki nota titringsbúnaðinn ef þú ert með svima eða kjálkakvilla (e.
Temporomandibular Joint (TMJ) Syndrome) til að koma í veg fyrir einkenni
eins og höfuðverk, svima og verki í andliti sem tengjast þessum kvillum.
• Ekki taka steralaus bólgueyðandi verkjalyf (NSAID) meðan á meðferðinni
stendur til að koma í veg fyrir hömlun á hreyfingu tanna í tannréttingum.
• Ekki nota titringsbúnaðinn ef þú ert þunguð.
VARÚÐ
• Titringsbúnaðinn skal aðeins nota undir handleiðslu læknis eða sérfræðings.
Hættu notkun á búnaðinum og ráðfærðu þig við lækni eða sérfræðing ef þú
finnur fyrir næmi fyrir titringi eða ef þú finnur fyrir höfuðverk, svima, ógleði,
óþægindi eða sársauka.
• Ekki gera neinar breytingar á titringsbúnaðinum. Hvers kyns breytingar
kunna að spilla fyrir virkni búnaðarins.
• Það kann að vera að notkun á titringsbúnaðinum henti ekki samhliða
tilteknum tannviðgerðum. Ráðfærðu þig við lækni eða sérfræðing áður en
notkun hefst.
• Ekki er mælt með titringsbúnaðinum fyrir sjúklinga sem greindir hafa verið
með tannrótarsjúkdóma.
• Hættu notkun á titringsbúnaðinum ef skemmdir hafa orðið á
tannréttingabúnaðinum þínum.
VARÚÐARÁÐSTAFANIR
• Mikilvægt er að lesa notkunarleiðbeiningar SureSmile VPro áður en notkun
hefst til að tryggja rétta notkun, viðhald og meðferð.
• Titringsbúnaðurinn og munnstykkið eru ætluð til endurnýtingar.
• Áður en notkun hefst skaltu yfirfara búnaðinn, munnstykkið og pakkningu
til að ganga úr skugga um að engar skemmdir hafi orðið á því í flutningi eða
meðhöndlun. Ekki nota skemmdar vörur.
• Ávallt skal endurhlaða titringsbúnaðinn í samræmi við notkunarleiðbeiningar
áður en notkun hefst. Notið aldrei tæki þegar tengt við orkuuppsprettu.
Skoðaðu kaflann HLEÐSLA.
• Aldrei skal nota aðra aflgjafa eða tækjabúnað með titringsbúnaðinum. Aðeins
skal nota aflgjafa sem gefur frá sér jafnt eða minna en 5V 1A.
• Ekki nota titringsbúnaðinn til að hreinsa eða bursta tennurnar til að forðast
óæskilegar tannhreyfingar.
• Aðeins skal nota titringsbúnaðinn samkvæmt leiðbeiningum læknisins.
• Titringsbúnaðurinn er ekki vatnsheldur, ekki nota hann nærri rennandi
vatni eða láta hann blotna. Munnstykkið má hreinsa með vatni samkvæmt
leiðbeiningum í kaflanum HREINSUN. Ekki láta munnstykkið komast í
snertingu við mjög heitt vatn til að koma í veg fyrir skemmdir á því.
• Ekki setja munnstykkið í uppþvottavél til að koma í veg fyrir skemmdir á því.
LEIÐBEININGAR Í SKREFUM
1. Skoðaðu og hreinsaðu fyrir notkun. Hreinsaðu munnstykkið undir vatni fyrir
fyrstu notkun. Skoðaðu kaflann MUNNSTYKKI LOSAÐ FRÁ varðandi það
hvernig munnstykkið er losað frá titringsbúnaðinum.
2. Titringsbúnaðinn skal hlaða að fullu fyrir fyrstu notkun. Skoðaðu kaflann
HLEÐSLA.
3. Tengdu munnstykkið við titringsbúnaðinn. Staðfestu að titringsbúnaðurinn
sé stöðugur og þéttur áður en munnstykkinu er komið fyrir í munninum.
4. Titringsbúnaðurinn er ætlaður til notkunar á meðan tannréttingabúnaður er
í munninum.
5. Ýttu á hnappinn á titringsbúnaðinum til að virkja titringslotuna.
6. Titringsbúnaðurinn er ætlaður til notkunar í samtals 5 mínútur á dag í einni
lotu. Titringsbúnaðurinn mun virkjast í 5 mínútur í hverri notkun og slekkur
svo sjálfkrafa á sér.
™
Titringstæki
MUNNSTYKKI
TITRINGSBÚNAÐUR
HLEÐSLUSNÚRA
7. Hreinsaðu munnstykkið eftir notkun ef þörf krefur. Skoðaðu kaflana
HLEÐSLA og HREINSUN. Geyma skal titringsbúnaðinn og munnstykkið við
stofuhita.
MUNNSTYKKIÐ LOSAÐ FRÁ
1. Haltu á titringsbúnaðinum þannig að hnappurinn snúi að þér.
2. Ýttu munnstykkinu niður á meðan þú heldur titringsbúnaðinum föstum til að
losa munnstykkið frá.
JÁ
HALDA
HREINSUN
Mynnstykkið ætti að hreinsa eftir hverja notkun í meðferð. Losaðu munnstykkið
frá titringsbúnaðinum. Hreinsaðu munnstykkið með vatni og burstaðu
það með tannbursta ef þörf krefur. USB hleðslusnúran og SureSmile VPro
titringsbúnaðurinn á að vera ÞURR.
HLEÐSLA
Titringsbúnaðurinn er hlaðinn með því að tengja hleðslusnúruna við USB
aflgjafa. Gakktu úr skugga um að aflgjafinn gefi frá sér minna en eða jafnt og
5V 1A. Blátt ljós mun blikka þegar búnaðurinn er í hleðslu. Grænt ljós mun loga
þegar búnaðurinn er fullhlaðinn. Rautt ljós mun blikka þegar hleðslan er lítil.
Titringsbúnaðurinn mun ekki titra þegar hann er í hleðslu. Mælt er með hleðslu
einu sinni í viku. Titringsbúnaðurinn er drifinn af (3,7 VDC) endurhlaðanlegum
fjölliða litíumjónarafgeymi. Titringsbúnaðinn er ekki hægt að nota meðan á
hleðslu stendur. Notið aldrei tæki þegar tengt við orkuuppsprettu.
TILKYNNINGAR BÚNAÐAR
Blátt (3 blikk)
Blátt (hægt blikk)
Grænt (3 blikk)
Grænt (hægt blikk)
Grænt (blikk og titringur)
Appelsínugult* (hægt blikk)
Appelsínugult*, grænt, blátt
(1 blikk hvert)
*Appelsínugult LED getur virst rautt fyrir sum tæki.
GEYMSLA
Meðhöndla skal búnaðinn þannig að titringsbúnaðurinn og munnstykkið
skemmist ekki. Munnstykkið ætti að geyma í upprunalegri pakkningu.
Titringsbúnaðinn og munnstykkið ætti að geyma við stofuhita.
Geymslu-/vinnuhitastig: 0°C til 30°C
Geymslu-/vinnurakastig: 15% til 90%
Andrúmsloft við geymslu/vinnu:
700 hPa til 1060 hPA
Flutningshitastig: -20°C til 45°C.
FÖRGUN
Eftir að tannréttingameðferð er lokið skal farga munnstykkinu.
Titringsbúnaðinum og hleðslusnúru ætti að farga í aðskilda móttöku fyrir
rafbúnað og raftæki í samræmi við staðbundnar reglugerðir.
Notuðum rafbúnaði og raftækjum (WEEE) ætti ekki að blanda saman við
almennt heimilissorp. Til að tryggja rétta meðferð, endurheimt og endurvinnslu
skaltu fara með þessa vöru á skilgreindan förgunarstað þar sem tekið verður
við henni án endurgjalds. Rétt förgun á þessari vöru aðstoðar við að bjarga
verðmætum auðlindum og koma í veg fyrir neikvæð áhrif á heilsu manna og
umhverfið sem annars kynnu að verða ef meðhöndlun á úrgangi er ekki rétt.
Vinsamlegast hafðu samband við staðbundin yfirvöld fyrir frekari upplýsingar
um næsta skilgreinda förgunarstað fyrir heimilissorp og hættulegan úrgang.
Hugsanlegt er að sektarviðurlög liggi við förgun með röngum hætti á úrgangi
sem þessum, í samræmi við landslög.
GEISLUN OG TRUFLANIR
• Þessi búnaður hefur verið prófaður og komist að þeirri niðurstöðu að
hann uppfyllir takmörk fyrir stafrænan búnað í flokki B, sbr. 15. kafli FCC
reglna. Þessi takmörk eru hönnuð þannig að þau veiti raunhæfa vernd
NEI
ÝTA
HALDA
ÝTA
Lota hefst
Hleðsla í gangi
Lota endar
Hleðslu lokið
Búnaður staðsettur
Lítil hleðsla
Búnaður endurstilltur/endurræstur
IS