Tabla de contenido

Publicidad

ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
IS
Vinsamlegast lestu, meðtaktu og fylgdu öllum öryggisupplýsingum sem eru í þessum leiðbeiningum áður en þetta Lóðrétta
kerfi er notað. EF LEIÐBEININGUM ÞESSUM ER EKKI FYLGT EFTIR GETUR ÞAÐ VALDIÐ ALVARLEGUM MEIÐSLUM EÐA DAUÐA.
Leiðbeiningar þessar verður að afhenda notanda þessa búnaðar. Geymdu þessar leiðbeiningar til að styðjast við í framtíðinni.
Tilætluð notkun:
Þetta Lóðrétta kerfi er ætlað til notkunar sem hluti af fullkomnu verndarkerfi sem verndar manneskjuna gegn falli.
Öll önnur notkun, þ.m.t., en takmarkast ekki við, notkun í afþreyingar- eða íþróttaskyni, notkun við meðhöndlun efna eða önnur notkun
sem ekki er lýst í Leiðbeiningum vöru, er ekki samþykkt af 3M og gæti valdið alvarlegum meiðslum, líkamstjóni eða dauða.
Einungis þjálfaðir notendur á vinnustað skulu nota þennan búnað.
!
VIÐVÖRUN
Þetta sveigjanlega kapal-/trausta handriðakerfi er hluti af verndarkerfi. Ætlast er til að allir notendur séu fullþjálfaðir í öruggri
uppsetningu og notkun þeirra eigin fallvarnarkerfis. Röng notkun þessa búnaðar getur valdið alvarlegum meiðslum eða dauða.
Fyrir rétt val, notkun, uppsetningu, viðhald og þjónustu skaltu lesa þessar leiðbeiningar fyrir vöru og allar ráðleggingar framleiðanda,
ræða við yfirmann þinn eða hafa samband við tæknilega þjónustu hjá 3M.
Til að lágmarka þá áhættu sem fylgir því að starfa með sveigjanlegu kapal-/traustu handriðakerfi sem getur, ef ekki er
komið í veg fyrir það, valdið alvarlegu líkamstjóni eða dauða, skal gera eftirfarandi:
-
Skoða alla íhluti kerfisins fyrir sérhverja notkun a.m.k. árlega og einnig ef slys eða óhapp hefur átt sér stað. Skoða skal íhluti í
samræmi við leiðbeiningar um vöruna.
-
Ef skoðun leiðir í ljós óöruggt eða gallað ástand einhvers íhluta kerfisins, skal fjarlægja gallaða íhlutinn úr kerfinu og farga honum.
-
Öll sveigjanleg kapal-/traust handriðakerfi sem hafa komið í veg fyrir fall, eða hafa orðið fyrir miklu álagi skulu þegar tekin úr
notkun og alla íhluti kerfisins verður að skoða af hæfum aðila áður en kerfið er tekið aftur í notkun.
-
Ekki tengjast kerfinu á meðan verið er að setja það upp.
-
Tryggðu að þetta kerfi sé merkt með viðeigandi hætti fyrir þann fjölda notenda sem notar það samtímis.
-
Þegar kapallinn er tekinn upp getur hann vafist fljótt í sundur. Notaðu viðeigandi verklag og viðeigandi persónuhlífar þegar
kapallinn er tekinn upp.
-
Einungis skal nota samþykkt tengi til að tengja líkamsbeislið við kerfið. Ekki skal nota nein viðbótartengi.
-
Notaðu aðeins kapal sem tilgreindur er og samþykktur í vöruleiðbeiningum.
-
Ekki skal hindra lásvirkni skyttu-/slífartækisins. Einungis skal nota tækið til að tengja eða aftengja það við kerfið.
-
Alltaf skal vera með þrjá snertipunkta við klifur. Sjá leiðbeiningar vöru til að fá frekari upplýsingar um rétta klifurtækni.
-
Tryggja skal að öll fallvarnarkerfi/undirkerfi sem eru samsett úr íhlutum mismunandi framleiðenda séu samhæfð og mæti kröfum
viðeigandi staðla, þ.m.t. staðlinum ANSI Z359 eða öðrum viðeigandi fallvarnarkóðum, stöðlum eða kröfum. Leitaðu ávallt ráða
hjá hæfum og/eða vottuðum aðila áður en þessi kerfi eru notuð.
Til að minnka áhættuna sem fylgir því að starfa hátt uppi, sem gæti, ef ekki er komið í veg fyrir það, valdið alvarlegum
meiðslum eða dauða:
-
Tryggðu að heilsa þín og líkamlegt ástand geri þér örugglega kleift að þola allt það álag sem fylgir því að starfa hátt uppi.
Ráðfærðu þig við lækni ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi hæfni þína til að nota þennan búnað.
-
Aldrei skal fara yfir leyfilega getu fallvarnarbúnaðarins.
-
Aldrei skal fara umfram hámarkslengd frjáls falls sem fallvarnarbúnaðurinn leyfir.
-
Ekki nota neinn fallvarnarbúnað sem bilar við prófun eða við eftirlit, eða ef þú hefur áhyggjur af notkun búnaðarins eða telur að
hann henti ekki í það verk sem er fyrir höndum. Hafðu samband við tæknilega þjónustu 3M ef þú ert með einhverjar spurningar.
-
Sum undirkerfi og samsetningar íhluta geta truflað notkun þessa búnaðar. Einungis skal nota tengingar sem eru samhæfðar við
þennan búnað. Ráðfærðu þig við 3M fyrir notkun þessa búnaðar ef hann er notaður með íhlutum eða undirkerfum öðrum en þeim
sem er lýst í notandaleiðbeiningunum.
-
Nota skal auka varúðarráðstafanir þegar verið er að vinna nálægt tækjabúnaði sem er á hreyfingu (dæmi: á olíuborpöllum),
nálægt rafmagnshættu, við mjög hátt eða lágt hitastig, við efnahættu, þar sem sprengihætta er eða hættulegar gastegundir,
skarpar brúnir, eða undir hlutum sem gætu fallið á þig eða á fallvarnarbúnaðinn sjálfan.
-
Notaðu Arc Flash- eða Hot Works-búnað þegar þú vinnur í mjög heitu umhverfi.
-
Forðastu yfirborðsfleti og hluti sem geta skaðað notanda eða búnaðinn.
-
Tryggðu að það sé viðeigandi pláss til að falla þegar þú vinnur hátt uppi.
-
Aldrei breyta eða umbreyta fallvarnarbúnaðinum. Einungis 3M eða aðilar sem hafa skriflegt umboð frá 3M mega gera við þennan
búnað.
-
Áður en fallvarnarbúnaður er notaður skaltu tryggja að neyðaráætlun sé til um hvernig bregðast skuli samstundis við ef fall á
sér stað.
-
Ef fall á sér stað skal leita læknishjálpar strax fyrir þann starfsmann sem fallið hefur.
-
Ekki má nota líkamsbelti til að stöðva fall. Einungis skal nota líkamsöryggisbelti.
-
Lágmarka skal sveiflur með því að vinna eins beint fyrir neðan festipunktinn og mögulegt er.
-
Ef þjálfun fer fram með þessum búnaði verður að nota annað fallvarnarkerfi, þannig að sá sem er í þjálfun sé ekki í hættu við að
falla óvart til jarðar.
-
Alltaf skal nota viðeigandi persónuhlífar þegar verið er að setja upp, nota eða hafa eftirlit með búnaðinum/kerfinu.
EYÐUBLAÐ NR.: 5908247 ENDURSK.: A
86

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

Lad-saf x2

Tabla de contenido