Maico ERM 18 Ex e Instrucciones De Montaje Y Funcionamiento página 52

Ocultar thumbs Ver también para ERM 18 Ex e:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 29
IS
9 Kveikt/slökkt á tækinu
Það er hægt að kveikja eða slökkva á viftunni með
valkvæðum rofa.
Viftan er gerð fyrir viðvarandi notkun (S1). Ef oft er
kveikt eða slökkt á viftunni getur það valdið óeðlilegri
hitnun og því skal forðast að gera slíkt.
10 Notkun með öfugum blæstri
Viftan er ekki gerð fyrir öfugan blástur.
11 Aðgerðir við bilanir
Aðgættu hvort útsláttarrofi mótorsins hafi virkjast.
Taktu rafmagn af viftunni ef bilanir koma upp. Áður
en viftan er sett aftur í gang skal fá fagmenn til að
komast að orsökum bilunarinnar og lagfæra hana.
Það á sérstaklega við ef útsláttarrofi mótorsins hefur
virkjast. Ef bilanir eiga sér endurtekið stað skal
senda tækið til verksmiðjunnar til viðgerðar.
Uppsetning rafvirkja með
sprengivarnarkunnáttu á tækinu
12 Öryggisleiðbeiningar
Notaðu aldrei tækið með „röngum hætti"
 kafli 5.
HÆTTA
!
Hætta af raflosti. Ávallt þegar vinna fer fram
!
á viftunni skal rjúfa straum til hennar og tryggja að
ekki sé hægt að kveikja á henni aftur og ganga
úr skugga um að engin spenna sé á henni. Settu
viðvörunarskilti upp þar sem það sést. Tryggðu að
sprengifimt andrúmsloft sé ekki til staðar.
Sprengihætta. Verndarflokkur er ekki
!
tryggður við ranga tengingu á leiðslum í
tengiboxi.
Tryggðu verndarflokk með réttri tengingu á leiðslum
í tengiboxinu.
Sprengihætta við notkun á tæki sem
!
ekki hefur verið uppsett fullkomlega og ef
er ekki tryggt.
loftinntak/-úttak.
Aðeins er heimilt að nota viftuna ef tækið hefur
verið sett upp fullkomlega og með áfestum
öryggisbúnaði (EN 60529) fyrir loftrásina. Tryggðu
að utanaðkomandi hlutir geti ekki sogast inn í
tækið og rörleiðsluna.
Sprengihætta/slysahætta
!
ef viftan er sett upp með röngum hætti eða
dettur niður.
Settu aðeins tækið upp á veggi/í loft með
fullnægjandi burðargetu og festingum.
Kaupandi þarf að útvega efni til festingar. Við
uppsetningu skal halda fólki frá svæðinu undir
uppsetningarstaðnum.
Sprengihætta vegna rangrar stillingar.
!
Íhlutar viftunnar sem snúast voru stilltir í
verksmiðjunni. Því má ekki taka tækið í sundur.
Undantekning á þeirri reglu er að fjarlægja má lokið
af tengiboxinu við uppsetningu á tækinu.
VARÚÐ: Skemmdir á tækinu
IP-verndarflokkurinn fellur úr gildi ef viftan
er sett upp þannig að hún blási upp í rökum
rýmum. Í rökum rýmum má ekki setja viftuna
þannig upp að hún blási upp.
50
13 Flutningur, geymsla
HÆTTA
!
Hætta af því að tækið detti niður í flutningum ef
röng flutningstæki eru notuð.
Notaðu viðeigandi og heimilaðan lyfti- og
flutningsbúnað fyrir viftuna og flutningsþyngdina.
Einstaklingar mega ekki fara undir farm á lofti.
Gættu að þyngd og þyngdarpunkti (miðju).
Gættu að hámarksburðargetu lyftibúnaðar og
flutningstækja sem er heimiluð. Heildarþyngd
 gerðarskilti á forsíðu.
Ekki setja á lag á viðkvæma íhluti við flutninga
eins og snúningshjólið eða tengiboxið. Færðu
flutningsbúnað rétt að tækinu.
VARÚÐ
!
Hætta á því að skerast af völdum skarpra
brúna á umgjörð tækisins. Notaðu
persónulegan hlífðarbúnað (skurðþolna
hanska) við uppsetningu.
● Sendu tækið aðeins í upprunalegum umbúðum.
● Geymdu tækið á þurrum stað (-25 til +55 °C).
14 Tæknilegar upplýsingar
 Gerðarskilti á forsíðu eða á tækinu.
Málbreidd, eftir gerð
180, 220 (með minnkun
í 200) eða 250
Verndarflokkur mótor
IP 54
Blástursmagn
 Gerðarskilti
Hljóðaflsstig
 Skýringarm. A/
gerðarskilti
Sveiflugildi (ISO 14694)
BV-3
Þyngd
 Gerðarskilti
15 Umhverfis-/notkunarskilyrði
● Heimilt hitastig umhverfis of flæðimiðils:
-20 °C < Ta < +50 °C. Fyrir sérútbúnar gerðir
 gerðarskilti.
● Flokkun eftir hámarksyfirborðshita í flokka.
Hitastigsflokkur T ...  Gerðarskilti.
Hitastigsflokkur
T1
T2
Hámarkshiti
450 300 200 135 100
yfirborðs [°C]
16 Uppsetning
Fylgdu gildandi reglum við uppsetninguna  einkum
tilskipun ESB 1999/92/EB, EN 60079-14 og VDE
0100 (í Þýskalandi).
Leiðbeiningar við uppsetningu
VARÚÐ: Skemmdir á tækinu
Tæki, sem þegar hafa verið fortengd við
tengibox, geta skemmst ef togað er í
tengikapla eða ef tækinu er lyft með leiðslunni.
Togaðu ekki í tengileiðslur eða lyftu tækinu með
leiðslunum.
ERM .. Ex e - vifta:
● fyrir varanlega uppsetningu í röraleiðslur þar sem
röraleiðslan hentar tækisgerðinni (málbreidd) eða
er sveigjanlegt rör.
● til uppsetningar á yfirborð í röri, á vegg, fót með
fullnægjandi burðargetu.
● Má setja alls staðar upp, í rökum rýmum má
hún ekki blása upp í móti.
● fyrir loftun eða loftræstingu, eftir
uppsetningarstað.
● Innstungur til að tengja tækið á báðum hliðum
fyrir beina uppsetningu í röraleiðslur.
● Fyrir rörtengi til að tengja við rör með öðru
þvermáli  Internet.
● Til að koma í veg fyrir að titringur smitist yfir
í rörakerfið mælum við með uppsetningu á
teygjanlegum múffum af gerðinni ELM-Ex og ELA
Ex, festifætinum FUM og titringsdemparanum GP
frá MAICO.
Prófanir fyrir uppsetningu
1. Framkvæmdu eftirfarandi prófanir: D = ítarprófun,
N = nærprófun, S = sjónprófun
Skoðunaráætlun
Tækið uppfyllir EPL-/svæðiskröfur
I
uppsetningarstaðarins.
II
Tækishópur réttur.
III
Tæki hitaflokkur réttur.
Verndarflokkur (IP-flokkur) tækisins
IV
samsvarar verndarstigið / hópinn /
leiðnigetuna.
V
Rafrásarteikning tækisins er til
staðar og er rétt.
Umgjörð og tengingar fullnægjandi. ●
VI
VII
Farðu yfir rétta virkni
mótorlegunnar fyrir uppsetningu.
Uppsetning tækis
1. Aðgættu hvort flutningsskemmdir séu á tækinu.
2. Undirbúðu uppsetningarstaðinn fyrir uppsetningu
í rör, á vegg eða á fót: Leggðu rörleiðslu eða
sveigjanlegt rör. Við uppsetningu á vegg skal
tryggja að uppsetningarflötur sé sléttur.
3. Leggðu trausta rafmagnsleiðslu að
uppsetningarstaðnum. Notaðu réttar tengingar
fyrir gerð tækisins.
!
VARÚÐ
Hætta á því að skerast af völdum skarpra
brúna á umgjörð tækisins. Notaðu
persónulegan hlífðarbúnað (skurðþolna
hanska) við uppsetningu.
4. ERM .. Ex e: Flyttu viftuna á uppsetningarstaðinn.
Farðu eftir öryggisleiðbeiningunum og
upplýsingunum í köflum 12 til 15.
HÆTTA
!
Viftan getur titrað við notkun. Ef festingin
T3
T4
T5
T6
losnar getur það haft lífshættu í för með sér ef
85
viftan dettur niður af völdum eigin þyngdar.
Settu aðeins tækið upp á veggi/í loft með
fullnægjandi burðargetu og festingum.
5. Fyrir festingu með festifætinum FUM: Festu
viðeigandi festifót með meðfylgjandi, sjálfskerandi
blikkskrúfum við umgjörð viftunnar (ekki
nota skrúfurnar á snúningshjólssvæðinu).
Uppsetningarstaður skiptir ekki máli. Gættu
þess að óhindrað aðgengi sé að tengiboxinu á
uppsetningarstaðnum.
6. Settu viftuna upp og skrúfaðu hana fasta
á öll kragaborgöt [X] (4 stykki) á veggnum.
Uppsetningaraðili þarf að tryggja fullnægjandi efni
til að festa viftuna og að það sé af réttri stærð.
Gættu að snúnings- og flæðisátt  Loftáttarpíla á
límmiða á tækinu.
7. ERM 22 Ex e: Við minnkun í 200 mm skal setja
rörtengið [3] á milli viftunnar og röraleiðslunnar
eða teygjanlegu múffunnar.
HÆTTA
!
Sprengihætta við notkun ánhlífðarbúnaðar
ef utanaðkomandi hlutir detta eða sogast
inn í loftrásina  Lífshætta af völdum
neistamyndunar. Verðu snúningshjólið með
heimilaðri varnargrind gegn snertingu, því að hlutir
falli inn í það og að utanaðkomandi hlutir sjúgist inn
í loftrásina .
D
N
S

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

Erm 22 ex eErm 25 ex e

Tabla de contenido