Hvernig á að þrífa og sótthreinsa barkakýlisnámsslönguna
1. Fjarlægið slönguna úr barkaraufinni og fjarlægið allan aukabúnað sem er festur við hana.
2. Skolið slönguna undir heitu rennandi kranavatni.
3. Dýfið slöngunni í heitt vatn (122–140 °F / 50–60 °C) sem inniheldur að minnsta kosti tvo
dropa af uppþvottalegi á hverja 8 oz. (235 ml) af vatni í að minnsta kosti 15 mínútur.
4. Fjarlægið slönguna úr sápuvatninu og skolið undir heitu rennandi kranavatni. Hreinsið
varlega innri og ytri hlið slöngunnar með svamppinna (seldur sér hjá InHealth Technologies).
Notið ekki bómullarpinna til að hreinsa slönguna þar sem þræðir gætu orðið eftir
(skýringarmynd 10).
5. Ef slangan er götuð (eingöngu StomaSoft™), hreinsið götin á sama hátt með Blom-Singer
hreinsibursta (seldur sér hjá InHealth Technologies) (skýringarmynd 11).
6. Sótthreinsið slönguna með því að dýfa henni í 3% vetnisperoxíðlausn yfir nótt.
7. Skolið vandlega undir rennandi kranavatni.
8. Látið slönguna loftþurrkast.
SÉRSTÖK SKILYRÐI UM GEYMSLU OG/EÐA MEÐHÖNDLUN
Engin sérstök skilyrði við geymslu og/eða meðhöndlun eiga við fyrir slönguna.
LEIÐBEININGAR UM FÖRGUN
Slangan er ekki lífrænt niðurbrjótanleg og getur mengast við notkun. Fargið slöngunni gætilega
samkvæmt staðbundnum leiðbeiningum.
PÖNTUNARUPPLÝSINGAR
Pöntun á netinu
USA
ALÞJÓ LEGT
+1-805-684-9337 til að fá samband við alþjóðlega dreifingaraðila.
KVARTANIR VEGNA VÖRU/ALVARLEG TILVIK INNAN ESB
Hafið samband við productcomplaints@inhealth.com ef varan reynist ekki fullnægjandi eða
ef spurningar vakna.
Tilkynna skal öll alvarleg atvik tengd raddventlinum til Freudenberg Medical, LLC, eins og
fram kemur hér að ofan, og til lögbærs yfirvalds í ESB aðildarríkinu þar sem notandinn og/eða
sjúklingurinn hefur búsetu.
Notkunarleiðbeiningar fyrir Blom-Singer® barkakýlisnámsslöngur
www.inhealth.com
InHealth Technologies
1110 Mark Avenue
Carpinteria, CA 93013-2918
Þjónustuver: +1-800-477-5969
Fax: +1-888-371-1530
Netfang: order@inhealth.com
Hafið samband við þjónustuver InHealth Technologies í síma
Sími: +1-800-477-5969
Fax: +1-888-371-1530
37889-01B I 53