VARÚÐ
Beittur hlutur
Minni háttar eða miðlungsalvarleg meiðsl
‐
Þegar rafleiðslur eru leiddar í
tengikassann skal nota hlífðarhanska
svo hvassar brúnir skeri ekki í
hendurnar.
Ef rafleiðslan hefur skemmst verður að
skipta um hana hjá framleiðanda,
viðhaldsþjónustu í samstarfi við
framleiðanda eða öðrum aðila með
sambærilega fagþekkingu.
Sá sem notar búnaðinn eða setur hann
upp ber ábyrgð á að jarðtenging og
varnarbúnaður séu rétt sett upp, í
samræmi við staðbundnar reglugerðir.
Viðurkenndir fagaðilar verða að
framkvæma alla vinnu við tengingar á
rafleiðslum.
7.3 Vörn gegn rafstuði, óbeinni snertingu
VIÐVÖRUN
Rafstuð
Dauði eða alvarleg meiðsl
‐
Tengið vöruna við jarðtengda
innstungu og tryggið hana gegn
óbeinni snertingu, í samræmi við
staðbundnar reglugerðir.
Varnarleiðarar verða alltaf að vera með gula og
græna (PE) eða gula, græna og bláa (PEN)
litamerkingu.
7.4 Hlíf fyrir rafmagnssnúrurnar
Gerð K er búin hlíf fyrir rafmagnssnúrurnar.
Hlífin er fest við einangrunarhlífina með 2 skrúfum (2)
og er með 3 götum fyrir spennumælingu (1) fyrir
viðkomandi fasa (L1, L2, L3).
2
1
L1
L2
L3
PE
Festa þarf hlífina fyrir rafmagnssnúrurnar
áður en kveikt er á vörunni.
7.5 Vörn gegn skammvinnum truflunum á
fæðispennu
Varan er varin gegn skammvinnum truflunum á
fæðispennu í samræmi við EN 61800-3.
7.6 Mótorvörn
Varan er með hitavörn sem ver gegn hægu yfirálagi
og stíflum. Ekki er þörf á ytri mótorvörn.
Vörunni fylgir álags- og hraðatengd yfirálagsvörn fyrir
mótor með geymslu á varmaminni.
7.7.2 Þéttihringir kapla
Sjá lista yfir stærðir þéttihringja í tengslum við
mótorstærðir í hlutanum um önnur tæknileg gögn.
Mælt er með því að nota þéttihring M20 eða M40,
eins og við á, í flokki IP 66 sem hentar sem
álagsvörn.
Að uppsetningu lokinni verður að loka
öllum M20-opum með meðfylgjandi
blindtöppum, til að halda IP 55/66-flokkun.
7.7.3 Þversnið kapla
VIÐVÖRUN
Rafstuð
Dauði eða alvarleg meiðsl
‐
Takið búnaðinn úr sambandi við
rafmagn, þar með talið
viðvörunarrafliðana. Bíðið í minnst 5
mínútur áður en nokkur tengivinna er
framkvæmd í tengjakassanum.
‐
Fylgið raflagnateikningunum og
gildandi reglugerðum.
‐
Notið útsláttaröryggi fyrir greinina.
‐
Fylgið ákvæðum staðbundinna
reglugerða um þversnið kapla.
‐
Notið ráðlagða öryggjastærð.
‐
Tengið snúrurnar við tengin og notið
ráðlagt hersluátak.
VIÐVÖRUN
Eldhætta
Dauði eða alvarleg meiðsl
‐
Fylgið ákvæðum staðbundinna
reglugerða um þversnið kapla.
‐
Notið ráðlagða öryggjastærð.
‐
Tengið snúrurnar við tengin og notið
ráðlagt hersluátak.
525