Descargar Imprimir esta página

3M PELTOR WS ALERT XP Manual Del Usuario página 129

Ocultar thumbs Ver también para PELTOR WS ALERT XP:

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 65
IS
14. GEYMSLA
• Geymdu vöruna á þurrum og hreinum stað fyrir og eftir
notkun.
• Geymdu vöruna alltaf í upprunalegum umbúðum, fjarri
hitagjöfum og þar sem hún verður ekki fyrir áhrifum af
sólarljósi, ryki eða kemískum efnum sem geta skaðað
hana.
• Hitastig við geymslu: -20°C (-4°F) til 40°C (104°F).
• Loftraki: <90%.
• Útgáfur fyrir höfuðspöng og hálsspöng:
Gættu þess að enginn þrýstingur sé á höfuðspöngina
eða hálsspöngina og að púðarnir þrýstist ekki saman.
• Útgáfa fyrir útbúnaðarfestingu:
Gættu þess að eyrnahlífarnar séu í vinnustillingu (sjá
mynd F:6) og að púðarnir þrýstist ekki saman.
ATHUGASEMD: Fjarlægðu rafhlöðurnar þegar varan er sett í
geymslu um langa hríð.
15. ÁBYRGÐ OG TAKMÖRKUÐ
SKAÐABÓTASKYLDA
15.1. ÁBYRGÐ
Komi í ljós að einhver vara frá 3M Personal Safety Division sé
gölluð hvað efnivið eða handbragð varðar og ekki í samræmi
við ótvíræða ábyrgð varðandi sérstakan tilgang, er eina
skuldbinding 3M og úrbót þér til handa sú að 3M velur sjálft
um að gera við, skipta um eða endurgreiða þér kaupverð
viðkomandi hluta eða vöru, að því tilskyldu að þú hafir tilkynnt
í tíma um vandamálið og að staðfest sé að varan hafi verið
geymd, henni viðhaldið og hún notuð í samræmi við skriflegar
leiðbeiningar 3M.
ÁBYRGÐ ÞESSI EINSKORÐAST VIÐ OG KEMUR Í
STAÐINN FYRIR ALLA YFIRLÝSTA ÁBYRGÐ EÐA ÁBYRGÐ
SEM GEFIN ER Í SKYN UM SELJANLEIKA, GAGNSEMI Í
ÁKVEÐNUM TILGANGI EÐA AÐRA ÁBYRGÐ UM GÆÐI
EÐA ÁBYRGÐ SEM SPRETTUR AF SÖLU, VENJU EÐA
NOTKUN Í STARFI, NEMA HVAÐ VARÐAR TILKALL OG
VEGNA BROTA GEGN EINKALEYFI.
3M ber samkvæmt ábyrgð þessari engar skyldur vegna
neinnar vöru sem ekki skilar ætluðum árangri vegna
ófullnægjandi eða rangrar geymslu, meðferðar eða viðhalds,
þegar ekki er farið eftir leiðbeiningum með vörunni eða þegar
henni er breytt eða hún skemmd af slysni eða vegna
vanrækslu eða rangrar notkunar.
15.2. TAKMÖRKUN Á ÁBYRGÐ
3M SKAL AÐ ENGU LEYTI BERA ÁBYRGÐ Á NEINU BEINU,
ÓBEINU, SÉRSTÖKU, TILFALLANDI EÐA AFLEIDDU TJÓNI
EÐA SKEMMDUM (ÞAR MEÐ TALIÐ HAGNAÐARTAP) SEM
SPRETTUR AF VÖRU ÞESSARI, BURTSÉÐ FRÁ ÞVÍ
HVAÐA LAGAKENNINGUM ER BEITT, NEMA ÞAR SEM
ÞAÐ ER LÖGUM SAMKVÆMT BANNAÐ. ÚRRÆÐI
EINSKORÐAST VIÐ ÞAÐ SEM HÉR ER GREINT FRÁ.
132
** 3M™ PELTOR™ WS™ ALERT™ XPI Heyrnartól
15.3. ENGAR BREYTINGAR
Ekki skal gera neinar breytingar á tæki þessu nema með
skriflegu samþykki 3M fyrirtækisins. Óheimilar breytingar
gætu ógilt ábyrgð og heimild notanda til þess að nota tækið.

Publicidad

loading