Descargar Imprimir esta página

Zapf Creation BABY born 824368 Manual De Instrucciones página 68

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 22
ekki ætlaður honum og gæti valdið stíflu.
Fylgið ávallt notkunarleiðbeiningum!
BABY born dúkkumaturinn samanstendur af blöndu úr sykri og sterkju og veldur ekki
skaðlegum áhrifum ef hann er óvart borðaður.
Vinsamlegast athugið geymsluþol sem kemur fram á merkingu pokans.
BABY born dúkkumatur fæst í leikfangaverslunum og einnig á Netinu.
6.
Ég pissa og kúka. (Mynd 6)
6.1. Hægt er að setja BABY born Soft Touch dúkkuna á koppinn og láta hana pissa. (Mynd 6)
BABY born Soft Touch dúkkan hefur fengið pelann og viðkomandi geymir er fullur. Setjið
BABY born Soft Touch dúkkuna nakta á koppinn. Haldið um maga dúkkunnar með báðum
höndum, þrýstið fast á naflann og viðhaldið þrýstingnum.
Nú getur vatnið lekið í koppinn. BABY born Soft Touch dúkkan pissar.
6.2. BABY born Soft Touch dúkkan kann að kúka í koppinn. (Mynd 6)
BABY born Soft Touch dúkkan hefur fengið BABY born dúkkumat og viðkomandi geymir er
fullur. Setjið BABY born Soft Touch dúkkuna nakta á koppinn. Haldið um maga dúkkunnar
með báðum höndum, þrýstið fast á naflann og viðhaldið þrýstingnum.
Innihald matargeymissins rennur nú ofan í koppinn. BABY born Soft Touch dúkkan kúkar.
Eru báðir geymarnir fullir tæmast þeir einnig samtímis þegar þrýst er á naflann.
6.3. BABY born Soft Touch dúkkan kann líka að kúka í bleyju.
Til þess skal setja nýja bleyju á dúkkuna og þrýsta fast á naflann eftir mat og halda þrýsting-
num. Dúkkan getur setið eða staðið. Þrýstið þangað til allur grauturinn er kominn í bleyjuna.
Varúð! Gangið úr skugga um að geymarnir tæmist alveg! Fylgið ávallt leiðbeiningunum um
hreinsun og bleyjuskipti.
Mikilvægt: Eftir graut og koppaferð þarf að hreinsa slöngukerfi inni í dúkkunni strax.
7.
Ég kann að fara í bað. (Mynd 7)
BABY born Soft Touch dúkkan má fara með í bað eða í sund. Þó má hún ekki fara í kaf. Ekki
láta dúkkuna liggja í beinu sólarljósi í lengri tíma (hámark 1 klst.).
Fyrir baðferð skal eingöngu nota kalt eða volgt vatn og venjulega baðsápu sem er ætluð
börnum. Ekki má leika sér lengur en í eina klukkustund með BABY born Soft Touch dúkkunni
í baði, í sundlaugarvatni eða sjó, annars má búast við efnahvörfum sem geta valdið aflitun
eða litabreytingum.
Vinsamlegast skolið BABY born Soft Touch dúkkuna eftir baðið með hreinu vatni og hreinsið
hana.
Vinsamlegast fylgið ávallt leiðbeiningunum um hreinsun og þurrkun.
Mikilvægt!
1. Við leik í baðkari getur vatn komist í slöngur og geyma. Þess vegna þarf að hreinsa slönguk-
erfi inni í BABY born dúkkunni strax eftir baðið. Lesið leiðbeiningar um hreinsun. (sjá nr. 11,
„leiðbeiningar um hreinsun")
2. Hefur vatn komist inn í dúkkuna skal fjarlægja það áður en leikið er meira með BABY born
dúkkunni eða eiginleikar hennar eru notaðir.
3. BABY born Soft Touch dúkkan hentar ekki sem hjálpartæki í sundi.
4. Ekki skal nota snyrtivörur á BABY born Soft Touch dúkkuna.
8.
Ég kann að hreyfa mig meira. (Mynd 8)
Handleggir, fótlegir og höfuð BABY born Soft Touch dúkkunnar eru hreyfanleg. Axlarliðir
snúast í 360° til að auðvelda að klæða dúkkuna í BABY born fötin og úr þeim.
9.
Ég kann að sofa. (Mynd 9)
Augu BABY born Soft Touch dúkkunnar lokast um leið og hún er lögð niður. BABY born Soft
Touch dúkkan sefur.
10. Ég þarf engar rafhlöður. (Mynd 10)
Allir eiginleikar sem lýstir eru hér virka á aflrænan hátt.
11. Leiðbeiningar um hreinsun: (Mynd 11)
Eingöngu fullorðnir skulu hreinsa dúkkuna!
Verður BABY born Soft Touch dúkkan ohrein er hægt að hreinsa hana að utanverðu með
68

Publicidad

loading