Descargar Imprimir esta página

3M PELTOR WS LiteCom Plus MT73H7A4310WS6EU Manual Del Usuario página 144

Ocultar thumbs Ver también para PELTOR WS LiteCom Plus MT73H7A4310WS6EU:

Publicidad

IS
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Afköst geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar.
Gera má ráð fyrir því að rafhlaða í eyrnatöppunum endist
dæmigert í 18 klukkutíma við samfellda notkun.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Þessar heyrnarhlífar eru í stærðinni stórar. Eyrnahlífar
sem uppfylla kröfur EN 352-1 eru í „millistærð" eða „lítilli
stærð" eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í „millistærð" henta
meirihluta notenda. Eyrnahlífar í „lítilli stærð" eða „stórri
stærð" eru hannaðar fyrir notendur sem ekki geta notað
millistærð af eyrnahlífum.
• Þessar eyrnahlífar, sem festar eru við höfuðhlífar og/eða
anditshlífar, eru „stór stærð". Eyrnahlífar sem festar eru við
höfuðhlífar og/eða anditshlífar og uppfylla kröfur EN 352-3
eru í „millistærð", „lítilli stærð" eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í
„millistærð" henta meirihluta notenda. Eyrnahlífar í „lítilli
stærð" eða „stórri stærð" eru hannaðar fyrir notendur sem
millistærð af eyrnahlífum hentar ekki.
• Frálag hljóðrásar í þessum heyrnarhlífum getur farið fram
yfir dagleg vámörk hávaða.
• Hljóðstyrkur afþreyingarhlustunar fer ekki yfir 75,4 dB(A).
Hámark SPL (hljóðstyrks) er 75,4 dB(A) við – 10 dBFS.
2.2. VARÚÐ
• Sé röng rafhlaða notuð, getur verið hætta á sprengingu.
• Hlaðið ekki rafhlöðurnar við hærra hitasig en 45°C
(113°F).
• Notaðu eingöngu 3M™ PELTOR™ rafhlöðu ACK081
hlaðna með 3M™ PELTOR™ AL2AI hleðslusnúru tengdri við
3M™ PELTOR™ aflgjafa FR08
• Hætta er á eldsvoða og brunasárum, séu liþín-jóna
rafhlöður notaðar. Ekki opna, brjóta, kveikja í eða hita upp í
meira en 55°C (131°F).
• Notaðu ávallt sérskilgreinda 3M™ PELTOR™ varahluti.
Sé notast við aðra varahluti en upprunalega gæti það dregið
úr verndinni sem varan á að veita.
• Farðu eftir leiðbeiningum í þessari handbók notanda. Sé
átt við vöruna getur það ógilt IP54-vottun hennar.
• Rykvarðar og vatnsþolnar við rétta notkun.
2.3. ATHUGASEMD
• Þegar heyrnarhlífarnar eru notaðar í samræmi við
leiðbeiningar notenda, draga þær bæði úr stöðugum hávaða,
svo sem í iðnaði eða frá ökutækjum og flugvélum, og
skyndilegum hávaða, til dæmis byssuskotum.
Erfitt er að segja fyrir um þá heyrnarvernd sem þörf er á eða í
raun er veitt hvað varðar váhrif af skyndilegum hávaða. Það
hefur áhrif á vernd gegn hávaða frá byssuskotum um hvaða
tegund vopns er að ræða, hve mörgum skotum er hleypt af,
hvaða heyrnarhlífar eru valdar, hvernig þær passa og eru
notaðar, hvernig um þær er annast og fleira. Kynntu þér betur
heyrnarvernd gegn skyndilegum hávaða á www.3M.com.
• Heyrnartól þessi eru búin styrkstýrðri hljóðdeyfingu.
133
Notandi ætti að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún
hefst. Ef hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi
að leita ráða hjá framleiðanda um viðhald og hvernig skipta á
um rafhlöðu.
• Á heyrnarhlífunum er innstunga fyrir öryggistengt
hljóðtæki. Notandi ætti að kynna sér rétta meðferð fyrir
notkun. Sé hljóð bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi
að leita til framleiðanda um ráð.
• Heyrnarhlífarnar takmarka hljóðmerki við
afþreyingarhlustun við 82 dB(A) við eyra.
• Hitastig við notkun: -20°C (-4°F) til 50°C (122°F).
3.
VOTTANIR
ESB
3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að Bluetooth
fjarskiptabúnaðurinn uppfyllir samræmiskröfur í tilskipun
2014/53/EU og öðrum viðeigandi tilskipunum til að uppfylla
kröfur um CE-merkingu.
3M Svenska AB lýsir því einnig yfir að PPE-gerðar
heyrnartólin séu í samræmi við reglugerð (EU) 2016/425.
Persónuhlífarnar er endurskoðaðar árlega af SGS Fimko Ltd.,
Takomotie 8, FI-00380 Helsinki, Finland, vottunarstofu nr.
0598 og gerðarvottaðar af PZT GmbH, vottunarstofu nr. 1974,
Bismarckstrasse 264 B, 26389 Wilhelmshaven, Þýskalandi.
Varan hefur verið prófuð og vottuð í samræmi við
EN 352-1:2020, EN 352-3:2020, EN 352-4:2020,
EN 352-6:2020 og EN 352-8:2020.
GB
3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að Bluetooth
fjarskiptabúnaðurinn uppfyllir samræmiskröfur í Tilskipun
2017 um fjarskiptabúnað og öðrum viðeigandi tilskipunum til
þess að standast kröfur um UKCA-merkingu.
3M Svenska AB lýsir því einnig yfir að þessi heyrnartól af
PPE-gerð uppfylli kröfur í reglugerðum um persónuhlífar
(Reglugerð 2016/425 eins og hún var felld inn í bresk lög með
breytingum).
Persónuhlífarnar eru endurskoðaðar árlega og gerðarvottaðar
af SGS United Kingdom Limited, Rossmore Business Park,
Ellesmere Port, Cheshire CH65 3EN, UK, vottunarstofu nr.
0120. Varan hefur verið prófuð og vottuð í samræmi við
EN 352-1:2020, EN 352-3:2020, EN 352-4:2020,
EN 352-6:2020 og EN 352-8:2020.
0120
ESB og GB
Hægt er að fá upplýsingar um viðeigandi löggjöf með því að
sækja samræmisyfirlýsingu (DoC) á www.3M.com/peltor/doc.
Samræmisyfirlýsingin sýnir einnig ef aðrar gerðarvottanir
gilda um þau. Þegar samræmisyfirlýsing er sótt, finndu
vinsamlegast hlutanúmer þitt. Þú finnur hlutanúmer
eyrnahlífanna neðst á annarri skálinni. Dæmi um það má sjá
á myndinni hér að neðan.
og
®
og
®

Publicidad

loading