Descargar Imprimir esta página

Zapf Creation BABY born Magic Girl Doll Manual De Instrucciones página 84

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 27
2.
Ég kann að pissa í bleyju. (Mynd 2)
Gefa þarf BABY born Magic Girl / Boy dúkkunni vatn; sjá nr.1, „Ég kann að drekka".
BABY born Magic Girl / Boy dúkkan fær nýja BABY born bleyju. Þegar þrýst er á naflann pissar BABY
born Magic Girl / Boy dúkkan í bleyjuna.
Bleyjan blotnar.
Nú er hægt að skipta á BABY born Magic Girl / Boy dúkkunni.
3.
Ég kann að gráta. (Mynd 3)
BABY born Magic Girl / Boy dúkkan kann að gráta alvöru tárum.
Til þess þarf að gefa BABY born Magic Girl / Boy dúkkunni vatn; sjá nr. 1, „Ég kann að drekka".
Síðan skal halda á BABY born Magic Girl / Boy dúkkunni með báðum höndum undir höndunum og
þrýsta með fingrum eða báðum þumlum nokkrum sinnum á efri brjóstsvæðið.
Tárin fara að streyma.
Ef það tekst ekki strax skal gefa BABY born Magic Girl / Boy dúkkunni aftu hreint vatn og þrýsta
aftur á brjóstið.
4.
Ég kann að borða. (Mynd 4)
BABY born Magic Girl / Boy dúkkan má fá BABY born dúkkumat.
Takið fram grautarskál, skeið og einn poka (einn skammt) af BABY born dúkkumat.
Tilreiðsla á BABY born graut:
Fyllið grautarskálina með vatni að merkingunni (u.þ.b. 12ml). Hræðið innihald pokans með BABY
born dúkkumat saman við vatnið með skeið þangað til blandan er kekkjalaus. Hún er tilbúin þegar
áferðin líkist vellingi sem auðvelt er að gefa BABY born Magic Girl / Boy dúkkunni með skeið.
Haldið á BABY born Magic Girl / Boy dúkkunni í fanginu og gefið henni grautinn með skeið.
Athugið: Notið eingöngu upprunalegan BABY born dúkkumat, því annars gætu slöngur og geymar
inni í dúkkunni stíflast.
Aldrei skal hella grautnum í pelann. Þá gæti grauturinn lent í geym inni í dúkkunni, sem er ekki
ætlaður honum og gæti valdið stíflu.
Fylgið ávallt notkunarleiðbeiningum!
BABY born dúkkumaturinn samanstendur af blöndu úr sykri og sterkju og veldur ekki skaðlegum
áhrifum ef hann er óvart borðaður.
BABY born dúkkumatur fæst í leikfangaverslunum og einnig á Netinu.
5.
Ég pissa og kúka.
5.1. Hægt er að setja BABY born Magic Girl / Boy dúkkuna á koppinn og láta hana pissa. (Mynd 5)
BABY born Magic Girl / Boy dúkkan hefur fengið pelann og viðkomandi geymir er fullur. Setjið
BABY born Magic Girl / Boy dúkkuna nakta á koppinn. Haldið um maga dúkkunnar með báðum
höndum, þrýstið fast á naflann og viðhaldið þrýstingnum.
Nú getur vatnið lekið í koppinn. BABY born Magic Girl / Boy dúkkan pissar.
6.
BABY born Magic Girl / Boy dúkkan kann að kúka í koppinn. (Mynd 6)
BABY born Magic Girl / Boy dúkkan hefur fengið BABY born dúkkumat og viðkomandi geymir er
fullur. Setjið BABY born Magic Girl / Boy dúkkuna nakta á koppinn. Haldið um maga dúkkunnar
með báðum höndum, þrýstið fast á naflann og viðhaldið þrýstingnum.
Innihald matargeymissins rennur nú ofan í koppinn. BABY born Magic Girl / Boy dúkkan kúkar.
Eru báðir geymarnir fullir tæmast þeir einnig samtímis þegar þrýst er á naflann.
6.1. BABY born Magic Girl / Boy dúkkan kann líka að kúka í bleyju.
Til þess skal setja nýja bleyju á dúkkuna og þrýsta fast á naflann eftir mat og halda þrýstingnum.
Dúkkan getur setið eða staðið. Þrýstið þangað til allur grauturinn er kominn í bleyjuna.
Varúð! Gangið úr skugga um að geymarnir tæmist alveg! Fylgið ávallt leiðbeiningunum um hrein-
sun og bleyjuskipti.
Mikilvægt: Eftir graut og koppaferð þarf að hreinsa slöngukerfi inni í dúkkunni strax.
84

Publicidad

loading

Este manual también es adecuado para:

827956827963827970831656831526831533 ... Mostrar todo